
Í skýrslunni er fjallað um þróun launa á almennum og opinberum vinnumarkaði, gerða kjarasamninga á yfirstandandi samningstímabili, launastig, samsetningu launa og launadreifingu árið 2024. Einnig er greint frá þróun efnahagsmála, kaupmætti og stöðu á íslenskum vinnumarkaði.
Kjaratölfræðinefnd er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um gerð og hagnýtingu talnaefnis um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, BHM - Bandalagi háskólamenntaðra, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, forsætisráðuneyti, félags- og vinnumálamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, og Hagstofu Íslands.
Til kynningarinnar er boðið fjölmiðlum, forystufólki og starfsfólki þeirra samtaka sem eiga fulltrúa í Kjaratölfræðinefnd, þar á meðal BHM. Kynningin fer fram föstudaginn 13. júní kl. 9.00 í húsakynnum ríkissáttasemjara að Borgartúni 21, 4. hæð.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, ávarpa fundinn. Þá kynna Hrafnhildur Arnkelsdóttir, formaður KTN, og Arnaldur Sölvi Kristjánsson, sérfræðingur nefndarinnar, helstu niðurstöður vorskýrslunnar.
Fundinum verður jafnframt streymt á vef Kjaratölfræðinefndar.