
BHM, Bandalag háskólamenntaðra sendi frá sér umsögn til fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna stöðumats og valkosta um stefnu ríkisins í mannauðsmálum (mál nr. S-85/2025). Í umsögninni fagnar BHM áformum um heildstæða og samræmda mannauðsstefnu fyrir ríkisstofnanir og leggur áherslu á að slík stefna geti eflt fagmennsku og árangur í opinberri stjórnsýslu.
BHM telur mikilvægt að stefnan verði mótuð í opnu og gagnsæju samráði við heildarsamtök launafólks og sérfræðinga í opinberri mannauðsstjórnun. Sama sjónarmið má finna í umsögnum annarra heildarsamtaka launafólks, þar á meðal BSRB, KÍ og ASÍ. Samhljómur þessara samtaka undirstrikar mikilvægi þess að ríkið hlusti á rödd launafólks og taki mið af þekkingu og reynslu þeirra sem þekkja best til starfsumhverfis og áskorana í opinberri þjónustu.
Í umsögn BHM kemur jafnframt fram að nauðsynlegt sé að skapa miðlægan vettvang þar sem helstu upplýsingar um mannauðsmál hjá ríkinu eru gerðar aðgengilegar. Í því sambandi tekur BHM undir ábendingar Félags forstöðumanna ríkisstofnana. Slík upplýsingaveita, eða stjórnendavefur, væri til þess fallin að styðja stjórnendur, starfsfólk ríkisins og stéttarfélög við innleiðingu mannauðsstefnu, auk þess að veita betri yfirsýn og þekkingu í mannauðsmálum.