Opnunartími BHM yfir hátíðarnar

Skrifstofa BHM verður lokuð milli jóla og nýárs en þjónustuver svarar símtölum og skilaboðum. Hefðbundin opnun frá og með 5. janúar.

Skrifstofa og þjónustuver BHM verða lokuð á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Dagana 29. og 30. desember og 2. janúar svarar þjónustuver BHM eingöngu fyrirspurnum sem berast í gegnum netspjall, tölvupósta og síma en ekki verður hægt að fá afgreiðslu á skrifstofu BHM þessa daga.

Þjónustuver og skrifstofa verða opin með hefðbundnum hætti frá og með mánudeginum 5. janúar.

Við minnum á að síðasti útgreiðsludagur styrkja úr sjóðum BHM er 19.desember. Sjúkradagpeningar verða greiddir 22. desember.

BHM óskar félagsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fim. 10:00 - 14:00
fös. 10:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt