
Pála Hallgrímsdóttir hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlageiranum, almannatengslum og upplýsingamiðlun, bæði innan opinberrar stjórnsýslu og í félagasamtökum. Hún kemur til BHM frá Veðurstofu Íslands, þar sem hún starfaði sem samskiptafulltrúi og hafði umsjón með vefritstjórn, fréttaskrifum, samfélagsmiðlum og samskiptum við fjölmiðla og hagaðila, bæði innanlands og á alþjóðavísu.
Áður starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Norræna félaginu og Snorrasjóði, þar sem hún sá um skipulag, fjármál og kynningarmál á alþjóðavettvangi. Hún hefur einnig fjölbreytta reynslu úr fjölmiðlum, þar á meðal sem dagskrárgerðarkona og á fréttastofu RÚV.
Pála er með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og Stokkhólms háskóla. Hún er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og lauk skiptinámi í utanríkisstefnu Bandaríkjanna frá American University í Washington DC. Einnig hefur hún lokið námskeiði í Strategic Communications frá London School of Economics.
Við bjóðum Pálu velkomna til starfa og hlökkum til að njóta hennar þekkingar og reynslu í kynningarmálum BHM.