
Páll Ásgeir hefur að baki víðtæka reynslu úr stjórnsýslu, atvinnulífi og samtökum á vinnumarkaði. Hann starfar nú sem þróunar- og samskiptastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og hefur áður gegnt stöðu forstöðumanns málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins. Þar á undan starfaði hann í fimm ár sem aðstoðarmaður ráðherra í forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti, þar sinnti hann til að mynda samhæfingu efnahagsaðgerða og eftirfylgni stefnumála ríkisstjórnarinnar.
Í atvinnulífinu hefur hann meðal annars starfað sem sviðsstjóri markaðs- og viðhorfsrannsókna hjá Gallup og leitt þróun lausna og ráðgjöf fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins.
Páll Ásgeir er með BA-próf í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur jafnframt setið í fjölmörgum stjórnum og nefndum, þar á meðal hjá VIRK, Icelandic Trademark Holding, Almannarómi og sem varamaður í stjórn Gildis lífeyrissjóðs.
„Starfsþróunarsetrið gegnir lykilhlutverki í að efla símenntun og starfsþróun háskólamenntaðra. Með hröðum breytingum á vinnumarkaði og aukinni tækniþróun skapast ný tækifæri til að nýta menntun á fjölbreyttari hátt. Ég hlakka til að taka þátt í því verkefni með öflugu samstarfsfólki og stjórn,“ segir Páll Ásgeir Guðmundsson.