
Yfirlýsing
Neðangreind stéttarfélög krefjast leiðréttingar á launum háskólamenntaðra og að þeim verði tryggð kaupmáttaraukning ráðstöfunartekna í komandi kjaraviðræðum. Háskólamenntaðir hafa setið eftir í kjarasamningum síðustu ára vegna ítrekaðra krónutöluhækkana með tilheyrandi samþjöppun launa á vinnumarkaði. Samþjöppun tekna á Íslandi er ein sú mesta í Evrópu.
Ljóst er að það stefnir í mikinn skort á sérhæfðu starfsfólki til að mæta þörfum atvinnulífsins. Hlutfall ungs fólks á Íslandisem hefur lokið háskólanámi er langt undir meðaltali OECD-ríkja. Við því verður að bregðast. Sé ekki gripið til aðgerða mun ávinningur af háskólamenntun minnka enn frekar. Þá er líklegt að háskólamenntaðir sæki meira í störf í löndum þar sem eftirspurn er eftir færni þeirra og lífskjör háskólamenntaðra eru betri en á Íslandi.
Dýralæknafélag Íslands
 Félag Geislafræðinga
 Félag háskólakennara
 Félag háskólakennara á Akureyri
 Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins
 Félag íslenskra hljómlistamanna
 Félag íslenskra náttúrufræðinga
 Félag lífeindafræðinga
 Félag prófessora við ríkisháskóla
 Félag sjúkraþjálfara
 Félagsráðgjafafélag Íslands
 Iðjuþjálfafélag Íslands
 Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
 Ljósmæðrafélag Íslands
 Læknafélag Íslands
 Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja
 Sálfræðingafélag Íslands
 Stéttarfélag Lögfræðinga
 Stéttarfélag tölvunarfræðinga
 Verkfræðingafélag Íslands
 Viska
 Þroskaþjálfafélag Íslands





