
Samningurinn byggir í megindráttum á fyrri samningi aðila en felur jafnframt í sér breytingar sem styrkja réttindi félagsfólks aðildarfélaga.
Helstu breytingar fela í sér:
· Launaviðtöl: Starfsmaður sem ekki fær að lágmarki þær launahækkanir sem kjarasamningar kveða á um á almennum vinnumarkaði á rétt á viðtali við launagreiðanda þar sem sú ákvörðun er rökstudd. Slíkt viðtal skal fara fram innan mánaðar frá því að krafa þess efnis er sett fram.
· Veikindaréttur barna: Réttur til fjarveru vegna veikinda barna hefur verið styrktur þannig að hann nær nú einnig til barna á aldrinum 13–16 ára í alvarlegum tilfellum sem leiða til sjúkrahúsinnlagnar.
· Orlofsréttindi: Breytingar hafa orðið á reglum um uppsöfnun orlofsréttinda. Starfsmaður sem hefur unnið í fimm ár í sömu starfsgrein á rétt á auknu orlofi.
Samningurinn er ótímabundinn réttindasamningur sem kveður ekki á um fjárhæð launa, heldur er gengið út frá því að félagsfólk á almennum vinnumarkaði semji um laun sín og eigi síðan rétt á launaviðtölum. Félögin sem standa að samningnum veita félagsfólki sínu kjaraþjónustu og almenna ráðgjöf um ákvæði samningsins.