Helstu atriði í umsögn BHM:
- Almenn fækkun stöðugilda: Frumvarpið gerir ráð fyrir 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu án þess að fyrir liggi nægileg greining á verkefnum og þjónustuþörf. Þá ber að hafa í huga að fjölgun ríkisstarfa á undanförnum árum hefur nær alfarið orðið í heilbrigðisþjónustu, öryggisþjónustu og kennslu.
- Samdráttur í þekkingargreinum: Framlög til nýsköpunar, rannsókna og háskóla lækka að raunvirði. Að mati bandalagsins stangast það á við yfirlýsta atvinnustefnu stjórnvalda sem byggist á þekkingardrifnum hagvexti. Útgjöld til háskóla sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru þegar lægri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.
- Kjarasamningar og gjaldskrár: BHM fagnar því að forsætisráðherra hafi boðað að hækkanir krónutölugjalda og gjaldskráa verði takmarkaðar við 2,5%, enda komi það til framkvæmda við afgreiðslu frumvarpsins. Að mati BHM má mæta tekjutapi ríkissjóðs með öðrum leiðum, svo sem með endurskoðun reglna um reiknað endurgjald og hertu eftirliti með milliverðlagningu.
- Kjör heimilanna og námslán: Stuðningur við heimilin rýrnar að raunvirði. Þá er staða Menntasjóðs námsmanna áhyggjuefni, enda hefur hlutfall stúdenta sem taka námslán lækkað og grunnframfærslan dugar ekki til.
Umsögnina má lesa í heild sinni, ásamt viðauka með nánari rökstuðningi hagfræðinga BHM.