Út­hlut­un­ar­reglur

Sótt er um styrki til sjóðsins á Mínum síðum BHM. Réttur til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að áður hafi verið greitt iðgjald til Starfsmenntunarsjóðs vegna sjóðfélaga samtals í 6 mánuði og þar af 3 mánuði samfellt áður en stofnað var til útgjalda sem veita rétt til styrks úr sjóðnum.

Uppfærðar úthlutunarreglur Starfsmenntunarsjóðs

Uppfærðar reglur taka gildi 23.03.2026. Við gildistöku þeirra falla eldri úthlutunarreglur úr gildi.

Ljóst var að einfalda þyrfti úthlutunarreglur og skerpa á áherslum. Við útfærsluna var sérstaklega horft til einföldunar og skilvirkni umsóknarferlis.

Helstu atriði í uppfærðum reglum:

  • Fastur ferðastyrkur vegna ferða erlendis
    Styrknum er ætlað að standa undir kostnaði við samgöngur til og frá millilandaflugvelli erlendis. Um fasta upphæð er að ræða sem hakað er við í umsóknarformi ef óskað er eftir styrknum. Þetta einfaldar umsóknarferlið þar sem ekki er lengur þörf á ítarlegum reikningum eða greiðslustaðfestingum fyrir þessum kostnaði.
  • Gagnaskil
    Í grein 4.0 er farið yfir hvaða gögnum þarf að skila til að ljúka afgreiðslu umsóknar.
  • 12 mánaða rammi
    Hægt er að sækja um styrk allt að 12 mánuði aftur í tímann, frá dagsetningu kostnaðar, að því gefnu að réttur hafi verið til staðar þegar kostnaður féll til.
  • Fjöldi umsókna
    Umsækjandi getur lagt inn allt að tvær umsóknir fyrir hvert verkefni, til dæmis eina vegna ráðstefnugjalds og flugs og aðra vegna gistikostnaðar.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fim. 10:00 - 14:00
fös. 10:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt