- Sjálfstætt starfandi
- Verktaki eða launþegi?
- Rekstur á eigin kennitölu eða í félagi
- Skattar og opinber gjöld
- Skráning rekstrar og félagsleg réttindi
- Reiknivél fyrir útselda vinnu
- Samningar, reikningar og innheimta
- Höfundaréttur og önnur hugverkaréttindi
- Tryggingar
- Lífeyrisréttindi
- Atvinnuleysisbætur
- Fæðingarorlof
- Félagsaðild og gjöld
- Sjóðir BHM
- Heilbrigðisstarfsmenn í sjálfstæðum rekstri
- Gjaldþrot og fjárhagserfiðleikar
Vinnumálastofnun afgreiðir umsóknir um atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Stöðvun rekstrar
Sjálfstætt starfandi einstaklingur þarf að hætta rekstri með formlegum hætti. Hann leggur fram hjá Vinnumálastofnun afrit tilkynningar til launagreiðendaskrár um að rekstur og öll starfsemi hafi verið stöðvuð.
Ávinnsla réttar
- Frá 1. september 2026 þarf sjálfstætt starfandi einstaklingur að hafa greitt sér að lágmarki 25% reiknaðs endurgjalds í sjö mánuði til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Áður var lágmarkið þrír mánuðir.
- Fullur réttur miðast við að greidd hafi verið staðgreiðsla og tryggingagjald af reiknuðu endurgjaldi í samræmi við viðmiðunarfjárhæðir ríkisskattstjóra síðustu tólf mánuði áður en sótt er um.
- Hafi reiknað endurgjald verið lægra en viðmiðunarfjárhæðin, eða greitt skemur, er bótaréttur hlutfallslegur.
Það er því mikilvægt að reikna sér endurgjald í samræmi við viðmiðunarfjárhæðir.
Fjárhæðir (frá 1. janúar 2026)
- Grunnatvinnuleysisbætur eru 383.870 kr. á mánuði miðað við 100% bótarétt, sbr. reglugerð nr. 1489/2025.
- Tekjutengdar bætur eru 70% af meðaltali heildarlauna. Hjá sjálfstætt starfandi er miðað við tekjuárið á undan því ári sem umsækjandi varð atvinnulaus. Hámark tekjutengdra bóta er 605.159 kr. á mánuði.
- Fyrstu tvær vikurnar eru greiddar grunnatvinnuleysisbætur. Síðan tekur við tekjutenging í þrjá mánuði.
Sjá nánar upphæðir og útreikning.
Lengd bótatímabils
Frá 1. júlí 2026 eru atvinnuleysisbætur greiddar í allt að 24 mánuði. Þeir sem áttu virka umsókn eða höfðu hafið bótatímabil fyrir þann dag halda 30 mánaða bótatímabili.
Skilyrði um atvinnuleit
Sá sem fær atvinnuleysisbætur skal vera skráður atvinnuleitandi hjá Vinnumálastofnun, vera í virkri atvinnuleit og fylgja leiðbeiningum stofnunarinnar.