Verk­taki eða laun­þegi?

Raunverulegt eðli sambandsins ræður því hvort þú ert verktaki eða starfsmaður, ekki heiti samningsins. Röng flokkun getur kostað þig mikilvæg réttindi.

Stundum er fólki boðið að starfa sem verktakar við aðstæður sem eru í reynd sambærilegar ráðningu. Þá er talað um gerviverktöku. Áður en þú samþykkir verktöku er mikilvægt að átta sig á því hvað hún felur í sér.

Hver er munurinn?

Samkvæmt leiðbeiningum Skattsins telst sá verktaki sem tekur að sér, gegn endurgjaldi, að vinna tiltekið verk fyrir annan og ábyrgist árangur verksins. Hjá þeim sem vinnur aðeins fyrir einn eða fáa ræðst það af eðli starfssambandsins hvort hann telst verktaki eða starfsmaður.

Atriði sem horft er til

Ekkert eitt atriði ræður úrslitum heldur heildarmat á sambandinu. Eftirfarandi atriði geta bent til þess að um ráðningarsamband sé að ræða fremur en verktöku:

  • verkkaupi stýrir því hvernig, hvar og hvenær vinnan er unnin,
  • þú vinnur eingöngu eða að mestu fyrir einn aðila,
  • verkkaupi leggur til starfsaðstöðu, tæki og búnað,
  • þú berð ekki fjárhagslega áhættu af verkinu og ábyrgist ekki árangur þess,
  • þú þarft að vinna verkið sjálf/ur og getur ekki falið það öðrum,
  • greitt er fyrir unninn tíma með reglubundnum hætti fremur en fyrir afmarkað verk.

Skatturinn getur metið hvort um verktöku eða launþegasamband er að ræða, óháð því hvernig aðilar hafa kosið að kalla það.

Hvað er í húfi?

Teljist sambandið vera ráðningarsamband á starfsmaður rétt á þeim kjörum og réttindum sem fylgja ráðningu samkvæmt lögum og kjarasamningum, svo sem orlofi, launum í veikindum og uppsagnarfresti. Atvinnurekandi greiðir þá tryggingagjald og mótframlag í lífeyrissjóð.

Verktaki nýtur hvorki þessara réttinda né verndar Ábyrgðasjóðs launa ef verkkaupi verður gjaldþrota. Hann greiðir sjálfur tryggingagjald og allt lífeyrisiðgjaldið.

Ef þér er boðin verktaka í stað ráðningar

  • Spurðu hvers vegna verktaka er boðin fremur en ráðning.
  • Berðu saman heildarkjör. Verktakagreiðsla þarf að standa undir sköttum, tryggingagjaldi, lífeyrisiðgjaldi, orlofi, veikindum og tryggingum. Reiknivél fyrir útselda vinnu getur hjálpað.
  • Gerðu skriflegan samning sem lýsir verkinu, greiðslum og ábyrgð. Sjá Samningar, reikningar og innheimta.
  • Leitaðu ráða hjá aðildarfélagi þínu áður en þú skrifar undir.

Vinna á netvangi

Evrópusambandið hefur sett tilskipun (ESB) 2024/2831 um bætt starfsskilyrði í vinnu á netvangi. Markmið hennar er að bæta starfsskilyrði og vernd persónuupplýsinga þeirra sem vinna í gegnum stafræna vettvanga. Aðildarríki ESB skulu innleiða tilskipunina eigi síðar en 2. desember 2026. Tilskipunin er merkt sem EES-tæk, en ekki liggur fyrir hvort eða hvenær hún verður tekin upp í EES-samninginn.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt