- Sjálfstætt starfandi
- Verktaki eða launþegi?
- Rekstur á eigin kennitölu eða í félagi
- Skattar og opinber gjöld
- Skráning rekstrar og félagsleg réttindi
- Reiknivél fyrir útselda vinnu
- Samningar, reikningar og innheimta
- Höfundaréttur og önnur hugverkaréttindi
- Tryggingar
- Lífeyrisréttindi
- Atvinnuleysisbætur
- Fæðingarorlof
- Félagsaðild og gjöld
- Sjóðir BHM
- Heilbrigðisstarfsmenn í sjálfstæðum rekstri
- Gjaldþrot og fjárhagserfiðleikar
Skriflegur samningur
Mælt er með því að gera skriflegan samning við verkkaupa áður en vinna hefst. Í samningi er rétt að fjalla um:
- verkefnið, afurðir þess, umfang og tímamörk,
- verð og greiðsluskilmála, svo sem tímagjald eða fast verð, gjalddaga og útlagðan kostnað,
- hvernig farið er með breytingar og viðbótarverk,
- hver á og má nýta afurðir vinnunnar, sjá Höfundaréttur og önnur hugverkaréttindi,
- trúnað og meðferð persónuupplýsinga,
- ábyrgð á verkinu og tryggingar,
- hvernig samningi verður sagt upp eða rift og hverjar afleiðingarnar eru.
Lýsi samningurinn í reynd ráðningarsambandi fremur en verktöku getur það haft áhrif á réttarstöðu þína. Sjá Verktaki eða launþegi?.
Reikningar
Reikningar þurfa að uppfylla kröfur laga og reglna um bókhald og, eftir atvikum, virðisaukaskatt. Ef þú ert á virðisaukaskattsskrá skal virðisaukaskattur koma fram á reikningi. Upplýsingar um kröfur til reikninga eru hjá Skattinum.
Greiðsludráttur
Semjið um gjalddaga í samningi. Berist greiðsla ekki á réttum tíma getur kröfuhafi átt rétt á dráttarvöxtum samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
Innheimta
- Sendu verkkaupa ítrekun með skýrum fresti.
- Ef greiðsla berst ekki getur verið rétt að leita til lögmanns eða innheimtuþjónustu.
- Ef verkkaupi verður gjaldþrota þarf að lýsa kröfu í þrotabúið. Sjá Gjaldþrot og fjárhagserfiðleikar.
Samkeppnisreglur og sameiginlegir samningar
Samkeppnislög gilda um fyrirtæki, og til fyrirtækja teljast einstaklingar sem stunda atvinnurekstur. Samráð keppinauta um verð og önnur viðskiptakjör er óheimilt samkvæmt samkeppnislögum nr. 44/2005. Sjálfstætt starfandi skulu því ákveða verð sitt sjálfstætt.
Framkvæmdastjórn ESB samþykkti 29. september 2022 leiðbeiningar um það hvenær einyrkjar geta samið sameiginlega um starfskjör án þess að brjóta gegn samkeppnisreglum ESB. Leiðbeiningarnar varða samkeppnisrétt ESB. Ekki liggur fyrir hvort íslensk samkeppnisyfirvöld eða Eftirlitsstofnun EFTA fylgja þeim.
Hvert get ég leitað?
Aðildarfélög BHM veita félagsfólki ráðgjöf um samninga. Lögmenn aðstoða við samningsgerð og innheimtu.