Fæð­ing­ar­or­lof

Sjálfstætt starfandi foreldrar eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Greiðslur miðast við reiknað endurgjald sem tryggingagjald hefur verið greitt af.

Um rétt til fæðingarorlofs gilda lög nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof. Almenn umfjöllun um fæðingarorlof er í kaflanum Jafnvægi einkalífs og vinnu. Hér er fjallað um það sem á sérstaklega við um sjálfstætt starfandi.

Hver telst sjálfstætt starfandi?

  • Samkvæmt lögunum er sjálfstætt starfandi foreldri sem starfar við eigin rekstur samfellt í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli, án tillits til félagsforms ef eignarhlutur þess er meiri en 25%. Foreldrinu er jafnframt gert að standa mánaðarlega skil á tryggingagjaldi.
  • Foreldri sem er bæði starfsmaður og sjálfstætt starfandi telst starfsmaður ef það starfar sem starfsmaður í 50% starfshlutfalli eða hærra. Annars telst það sjálfstætt starfandi.

Réttur til greiðslna

  • Foreldri öðlast rétt til greiðslna eftir að hafa verið samfellt í starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns.

Fjárhæð greiðslna

  • Greiðslur nema 80% af meðaltali tekna á viðmiðunartímabili.
  • Hjá sjálfstætt starfandi er viðmiðunartímabilið almanaksárið á undan fæðingarári barns.
  • Hámarksgreiðsla er 900.000 kr. á mánuði vegna fæðingarorlofs sem nýtt er 1. janúar 2026 og síðar.

Of lágt reiknað endurgjald leiðir til lægri greiðslna í fæðingarorlofi. Sjá upphæðir og útreikning.

Lengd og tilhögun

  • Hvort foreldri á sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að sex mánuði. Heimilt er að framselja sex vikur til hins foreldrisins.
  • Heimilt er að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag.
  • Réttur til fæðingarorlofs fellur niður þegar barnið nær 24 mánaða aldri.

Umsókn

Sótt er um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á Ísland.is. Skila þarf umsókn sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag. Afgreiðsla getur tekið tvær til fimm vikur.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt