Aðalfundur BHM 2025
13. maí 2025
Aðalfundur BHM 2025 verður haldinn fimmtudaginn 15. maí í Norðurljósasal Hörpu
Aðalfundur BHM fer með æðsta vald í málefnum bandalagsins. Þar eiga sæti fulltrúar aðildarfélaga BHM. Fundurinn er haldinn árlega að vori, fyrir lok maímánaðar eins og fram kemur í lögum BHM.
Fundurinn hefst kl. 10:00 en skráning fulltrúa hefst kl. 9:30. Dagskráin er samkvæmt lögum um aðalfund BHM.