
Fundurinn er framhald af umfangsmikilli könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði. Að henni standa aðildarfélög BHM ásamt Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélagi Íslands, Læknafélagi Íslands og Verkfræðingafélagi Íslands.
Nú verður sjónum sérstaklega beint að ungu fólki á aldrinum 18-34 ára og leið þess frá námi til sjálfstæðis. Fjallað verður um veikleika námslánakerfisins, flókna stöðu fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði og þær fjárhagslegu hindranir sem gera ungu fólki erfitt fyrir að koma sér upp eigin heimili.
DAGSKRÁ
11:30 – Húsið opnar
Boðið verður upp á léttan hádegismat.
12:00 – Opnunarávarp
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
– Hagkorn BHM: Hver kemst inn og hver bíður? Ungt fólk á húsnæðismarkaði
Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingar BHM
– Hver er staða ungs fólks á húsnæðismarkaði?
Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS
Pallborð: Hvernig getum við stytt leiðina til sjálfstæðis?
- Ragnar Þór Ingólfsson, félags – og húsnæðismálaráðherra
- Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti LÍS
- Sóllilja Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Vörðu
Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir.
13:30 – Samantekt og fundarslit
Taktu þátt í mikilvægu samtali um námslán, húsnæði og leið ungs fólks til sjálfstæðis. Taktu daginn frá og skráðu þig á fundinn.






