Höf­unda­rétt­ur og önn­ur hug­verka­rétt­indi

Sjálfstætt starfandi í skapandi greinum, ráðgjöf og tækni þurfa að tryggja að samningar við verkkaupa kveði skýrt á um hver á og má nýta afurðir vinnunnar.

Höfundaréttur

Samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972 eiga höfundar einkarétt til að gera eintök af verkum sínum og gera þau aðgengileg almenningi, í upprunalegri eða breyttri mynd. Flytjendur, framleiðendur og útvarpsstöðvar njóta svonefndra skyldra réttinda.

Fjárhagsleg réttindi og sæmdarréttur

  • Fjárhagsleg réttindi: réttur til að gera eintök af verki og birta það eða dreifa því. Höfundur getur framselt þessi réttindi, til dæmis með samningi.
  • Sæmdarréttur: réttur höfundar til að vera nafngreindur og til að banna ósæmilega meðferð verks.

Hver á verk sem unnið er í verktöku?

Höfundaréttur stofnast hjá þeim sem skapar verkið. Verkkaupi öðlast þau réttindi sem um er samið. Því skiptir miklu að samningur tilgreini nákvæmlega hvaða réttindi eru framseld.

Hvað ber að varast í samningum?

  • Umfang framsals: Tilgreindu hvaða réttindi eru framseld og í hvaða tilgangi, til dæmis útgáfu, netbirtingu eða afnot í tiltekinn tíma. Framsal ætti ekki að vera víðtækara en nauðsyn krefur.
  • Tímalengd: Takmarkaðu framsal í tíma og tryggðu rétt til endurskoðunar ef verk er ekki nýtt.
  • Þóknun: Tilgreindu hvernig og hvenær greitt er, svo sem fast verð eða hlutdeild í tekjum.
  • Breytingar og nafngreining: Skýrðu hvort og hvernig breyta má verkinu og tryggðu að þín sé getið sem höfundar.
  • Önnur notkun: Komdu í veg fyrir að verk sé notað í öðrum tilgangi en samið var um.

Rithöfundasamband Íslands birtir leiðbeiningar um samningagerð höfunda.

Vörumerki, hönnun og viðskiptaleyndarmál

Vörumerki

Skráð vörumerki veitir eiganda einkarétt til að nota merkið fyrir tilteknar vörur eða þjónustu, sbr. lög nr. 45/1997 um vörumerki. Skráning gildir í tíu ár og má endurnýja hana til tíu ára í senn. Vernd er landsbundin og gildir aðeins þar sem merkið er skráð.

Hönnun

Útlit vöru, svo sem lögun, litir og mynstur, getur notið verndar samkvæmt lögum nr. 46/2001 um hönnun ef hönnunin er skráð og uppfyllir skilyrði laganna. Í sumum tilvikum getur hönnun einnig notið höfundaréttar.

Viðskiptaleyndarmál

Upplýsingar sem hafa viðskiptalegt gildi vegna þess að þær eru leyndar geta notið verndar sem viðskiptaleyndarmál. Gerðu ráðstafanir til að halda þeim leyndum og semdu um trúnað við samstarfsaðila.

Hugverkastofan annast skráningu vörumerkja og hönnunar og veitir upplýsingar um hugverkaréttindi.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt