Líf­eyr­is­rétt­indi

Sjálfstætt starfandi er skylt að greiða í lífeyrissjóð frá 16 til 70 ára aldurs. Þeir greiða sjálfir allt lágmarksiðgjaldið, 15,5% af reiknuðu endurgjaldi.

Skylda og lágmarksiðgjald

  • Öllum launamönnum og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi er rétt og skylt að tryggja sér lífeyrisréttindi með aðild að lífeyrissjóði frá 16 til 70 ára aldurs, sbr. lög nr. 129/1997.
  • Lágmarksiðgjald er 15,5% af iðgjaldsstofni. Hjá launafólki skiptist það milli launamanns og launagreiðanda, en sjálfstætt starfandi greiða það allt sjálf. Iðgjaldsstofn sjálfstætt starfandi er reiknað endurgjald.
  • Heimilt er að ráðstafa allt að 3,5% af lágmarksiðgjaldinu í tilgreinda séreign.
  • Sjálfstætt starfandi geta greitt viðbótariðgjald í séreignarsparnað.
  • Auk lífeyrisiðgjalds greiða sjálfstætt starfandi 0,13% iðgjald í starfsendurhæfingarsjóð, sbr. lög nr. 60/2012. Það er greitt til þess lífeyrissjóðs sem tekur við lífeyrisiðgjaldi. Sjá VIRK.

Iðgjöld eru greidd mánaðarlega. Kannaðu gjalddaga og eindaga hjá þínum lífeyrissjóði.

Val á lífeyrissjóði

Aðild launafólks að lífeyrissjóði fer almennt eftir kjarasamningi eða sérlögum. Sjálfstætt starfandi þurfa sjálf að velja sér sjóð. Við valið má meðal annars líta til:

  • réttinda til ellilífeyris, örorkulífeyris og maka- og barnalífeyris,
  • ávöxtunar yfir lengra tímabil,
  • möguleika á tilgreindri séreign og séreignarsparnaði,
  • reglna um töku lífeyris.

Réttindi

Lífeyrissjóðir greiða ellilífeyri, örorkulífeyri og maka- og barnalífeyri. Hvenær taka ellilífeyris getur hafist og hvort fresta má töku hans fer eftir samþykktum hvers sjóðs.

Vangreidd iðgjöld

Ef iðgjöld eru ekki greidd ávinnast ekki réttindi fyrir það tímabil. Það getur skert ellilífeyri og haft áhrif á rétt til örorku- og makalífeyris.

Nánari upplýsingar eru hjá lífeyrissjóðunum og á vefnum Lífeyrismál.is.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt