Frá 1. september 2026 gilda nýjar reglur um skýrslugjöf fyrirtækja og stofnana um kynbundinn launamun. Skýrslugjöfin kemur í stað jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar. Markmiðið er að tryggja að starfsfólk fái jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni, og að launaákvarðanir byggist á hlutlægum og kynhlutlausum viðmiðum.
Reglurnar eiga stoð í 8.–10. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, eins og þeim var breytt með lögum nr. 53/2026, og í reglugerð nr. 946/2026 um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun og eftirlit Jafnréttisstofu.
Hverjum ber að skila skýrslu?
Fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli skulu á þriggja ára fresti skila Jafnréttisstofu gögnum sem sýna að launakerfi þeirra tryggi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Fjöldi starfsfólks miðast við meðalfjölda á fyrra almanaksári, óháð starfshlutfalli. Stjórnarráð Íslands skal skila sömu gögnum, óháð fjölda starfsfólks í ráðuneytum.
Jafnréttisáætlun samkvæmt 5. gr. laganna er forsenda þess að fyrirtæki eða stofnun geti lokið skýrslugjöf.
Hvað felst í skýrslugjöfinni?
- Starfaflokkun: Flokka skal öll störf, þar á meðal stjórnunarstörf, samkvæmt fyrirframákveðnum, hlutlægum og kynhlutlausum viðmiðum. Að lágmarki skal taka tillit til ábyrgðar, álags, hæfni og vinnuaðstæðna. Markmiðið er að greina hvaða störf teljast sömu eða jafnverðmæt.
- Launagreining: Greina skal laun eftir kyni á grundvelli starfaflokkunarinnar. Greiningin skal sýna meðaltal fastra mánaðarlauna fyrir dagvinnu, fastra viðbótargreiðslna og allra aukagreiðslna. Taka skal tillit til allra þátta launa og kjara, þar á meðal hlunninda sem metin verða til fjár.
- Áætlun um úrbætur: Leiði launagreiningin í ljós kynbundinn launamun sem ekki skýrist af málefnalegum sjónarmiðum skal atvinnurekandi gera tímasetta áætlun um úrbætur, eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerðinni.
Heimilt er að meta einstaklingsbundna hæfni starfsfólks til launa, enda byggist matið á fyrirframákveðnum, hlutlægum og kynhlutlausum viðmiðum sem gilda um allt starfsfólk.
Hvenær þarf að grípa til úrbóta?
Atvinnurekanda ber að skila áætlun um úrbætur ef launagreining sýnir að kynbundinn launamunur á reglulegum launum, umreiknuðum í tímakaup, er meiri en 3,9% og skýrist ekki af málefnalegum sjónarmiðum.
Viðmiðið tekur mið af leiðréttum launamun á vinnumarkaði í heild, að teknu tilliti til vikmarka. Það lækkar ef leiðréttur launamunur minnkar samkvæmt rannsókn Hagstofu Íslands, sem gerð er á þriggja ára fresti. Jafnréttisstofa birtir gildandi viðmið í leiðbeiningum sínum um launagreiningu.
Í áætlun um úrbætur skal tilgreina til hvaða aðgerða verði gripið, hver beri ábyrgð á þeim og hvenær þeim skuli lokið. Áætluninni skal skila með skýrslugjöfinni og í síðasta lagi þremur mánuðum síðar. Úrbótum skal lokið fyrir næstu gagnaskil.
Viðmiðið um 3,9% felur ekki í sér heimild til kynbundins launamunar undir þeim mörkum. Óheimilt er að mismuna starfsfólki í launum og öðrum kjörum á grundvelli kyns, hvort sem skilyrði fyrir gerð úrbótaáætlunar eru uppfyllt eða ekki.
Hvaða upplýsingar á starfsfólk rétt á?
Atvinnurekendum er skylt að kynna starfsfólki niðurstöður launagreiningarinnar og gera þær aðgengilegar. Í kynningunni skulu að lágmarki koma fram tölfræðiupplýsingar um kynbundinn launamun á vinnustaðnum. Gæta skal persónuverndar þannig að ekki sé unnt að rekja upplýsingar um laun til einstaklinga.
Starfsfólk heldur jafnframt rétti sínum til að greina frá eigin launakjörum og krefjast leiðréttingar telji það sér mismunað í launum.
Eftirlit Jafnréttisstofu
Jafnréttisstofa hefur eftirlit með því að atvinnurekendur skili tilskildum gögnum og framfylgi áætlunum um úrbætur. Stofnunin getur krafist upplýsinga og gagna, gefið fyrirmæli um úrbætur og beitt dagsektum ef atvinnurekandi sinnir ekki lögbundnum skyldum sínum.
Þar sem við á er fullnægjandi framkvæmd úrbótaáætlunar forsenda þess að Jafnréttisstofa samþykki gagnaskil. Jafnréttisstofa birtir opinbera skrá yfir fyrirtæki og stofnanir sem hafa skilað gögnum.
Hvenær þarf að skila gögnum í fyrsta sinn?
- Fyrirtæki og stofnanir sem hafa fengið jafnlaunavottun skulu skila gögnum þremur árum eftir síðustu vottun.
- Fyrirtæki og stofnanir sem hafa fengið jafnlaunastaðfestingu skulu skila gögnum þremur árum eftir síðustu staðfestingu.
- Fyrirtæki og stofnanir sem falla undir reglurnar en hafa hvorki fengið jafnlaunavottun né jafnlaunastaðfestingu skulu skila gögnum fyrir 1. mars 2027.
Gagnaskil fara fram í rafrænu þjónustu- og gagnakerfi Jafnréttisstofu.
Hvað gildir um minni vinnustaði?
Skyldan til skýrslugjafar nær aðeins til vinnustaða þar sem 50 eða fleiri starfa. Fyrirtæki og stofnanir þar sem 25 eða fleiri starfa skulu þó setja sér jafnréttisáætlun eða samþætta jafnréttissjónarmið í starfsmannastefnu sína (5. gr. laga nr. 150/2020). Reglan um jöfn laun fyrir sömu og jafnverðmæt störf gildir hjá öllum atvinnurekendum, óháð stærð.
Hvaða þýðingu hafa breytingarnar fyrir launafólk?
Þótt nýtt kerfi hafi leyst jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfestingu af hólmi stendur grundvallarreglan um jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óhögguð. Atvinnurekendum ber að sýna reglulega fram á að starfaflokkun, launagreining og launaákvarðanir hvíli á málefnalegum og kynhlutlausum forsendum.
Það skiptir launafólk miklu að starfaflokkun endurspegli raunverulegar kröfur starfa, meðal annars um menntun, sérhæfða þekkingu, ábyrgð og álag. Rétturinn til jafnra launa er sjálfstæður og gildir óháð því hvort atvinnurekandi hafi sinnt skyldum sínum um skýrslugjöf. Sjá nánar Launajafnrétti.