Jafn­rétti

Jafnrétti er ekki bara markmið – það er ófrávíkjanleg krafa! Enn hallar á konur, kvár og jaðarsetta hópa á vinnumarkaði, bæði í launakjörum og lífeyrisréttindum. BHM krefst þess að kynbundnum launamun og skekkju í verðmætamati starfa verði eytt og að jafnt aðgengi að vinnumarkaði og starfsþróun verði tryggt fyrir alla.

Lög og reglugerðir um jafnrétti eru aðeins fyrsta skrefið – nú þarf að fylgja þeim eftir með raunverulegum aðgerðum og ábyrgð.

Áherslur BHM um raunverulegt jafnrétti

  • Enginn kynskiptur vinnumarkaður! Rótgróin mismunun í verðmætamati starfa hefur viðhaldið því að hefðbundin kvennastörf eru verr launuð en karlastörf. Þessu þarf að breyta með markvissum aðgerðum.
  • Jöfn skipting fæðingarorlofs! Til að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði þarf að tryggja að fæðingarorlofi sé jafnt skipt milli foreldra og að greiðslur haldist í hendur við almennar launahækkanir.
  • Tryggð dagvistun strax að loknu fæðingarorlofi! Enginn foreldri á að vera í óvissu með leikskólapláss – þetta er forsenda jafnréttis.
  • Ólaunuð vinna og ábyrgð innan heimilisins verður að dreifast jafnt! Konur vinna fleiri ólaunaðar vinnustundir en karlar, sem hefur áhrif á atvinnuþátttöku þeirra og stöðu á vinnumarkaði.
  • Lífeyriskerfið verður að taka mið af jafnrétti! Konur hafa að meðaltali lægri ævitekjur og þar með lakari lífeyrisréttindi en karlar. Lífeyriskerfið verður að leiðrétta þessa skekkju.

Samstarfstækifæri við stjórnvöld – Nú þarf aðgerðir!

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á jafnrétti og að draga úr kynbundnum launamun. Það er jákvætt, en BHM ætlast til þess að þeim orðum fylgi aðgerðir.

  • Endurmati á virðismati starfa þarf að fylgja fjármögnun og aðgerðum.
  • Tryggja þarf að laun hækki í takti við menntun, ábyrgð og verðmætasköpun.
  • Jöfn skipting fæðingarorlofs þarf að styðjast við lagalega vernd og fjármögnun.
  • Afnema þarf kynbundnar skekkjur í lífeyriskerfinu og tryggja jafnræði.

BHM mun beita sér af fullum þunga fyrir raunverulegum breytingum og krefst þess að stjórnvöld vinni að þessum markmiðum í samstarfi við samtök launafólks. Tími er kominn til að gjörbreyta íslenskum vinnumarkaði í þágu jafnréttis!

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt