Skatta­mál

Réttlát skattastefna fyrir öflugt samfélag!

Skattkerfið er eitt mikilvægasta stjórntæki samfélagsins. Gagnsætt, skilvirkt og réttlátt skattkerfi er forsenda öflugs velferðarkerfis, jöfnuðar og efnahagslegs stöðugleika.

Íslenska skattkerfið verður að tryggja nægilega tekjuöflun fyrir samneyslu og grunnþjónustu án þess að íþyngja launafólki óhóflega. Það er óásættanlegt að jafnvægi í opinberum fjármálum sé náð með sífellt meiri skattbyrði á launafólk á meðan lítið er tekið á vaxandi eignaójöfnuði.

Krafan er skýr – Réttlát skattaumgjörð fyrir launafólk og námsmenn!

  • Afborganir námslána verða að vera frádráttarbærar frá skatti. Námsfólk tekur á sig skuldir til að byggja upp þekkingu sem nýtist samfélaginu – það á ekki að sæta refsingu fyrir það.
  • Styrkir úr sjúkra- og fræðslusjóðum stéttarfélaga eiga ekki að vera skattskyldir. Stjórnvöld verða að standa við fyrirheit frá 2008 um að leiðrétta þessa skekkju.
  • Barnabótakerfið þarf að vera öflugra og sanngjarnara. Tekjuviðmið vaxta- og barnabóta verða að taka mið af raunverulegum aðstæðum háskólamenntaðra og námslánaskuldir teknar með í reikninginn.
  • Endurskoða þarf skattalegt umhverfi sjálfstætt starfandi einstaklinga. Stjórnvöld eru hvött til að endurskoða skattalegt umhverfi sjálfstætt starfandi einstaklinga og réttindi þeirra á vinnumarkaði.
  • Auka þarf tekjuöflunargetu sveitarfélaga. Stöðugleiki í fjármögnun grunnþjónustu sveitarfélaga er lykilforsenda jöfnuðar og velferðar um land allt.
  • Nýta þarf skattkerfið til að stuðla að nýsköpun, rannsóknum og þróun.

Samstarfstækifæri við stjórnvöld – Skattkerfið verður að virka fyrir samfélagið!

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á ábyrga fjármálastjórn og öfluga tekjuöflun fyrir samfélagið. BHM mun tryggja að þessi stefna verði útfærð á sanngjarnan hátt fyrir launafólk, námsmenn og atvinnulífið!

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt