Styrkt­ar­sjóð­ur

Styrktarsjóður BHM er fyrir félagsfólk á opinberum markaði, hjá ríki eða sveitarfélögum. Margvíslegir styrkir eru veittir.

Forvarnir og meðferðir

Félagar fá allt að 60.000 króna styrk vegna ýmiss konar meðferða, búnaðar og forvarna sjóðfélaga sjálfs, t.a.m. útlagðan kostnað vegna ýmissar heilbrigðisþjónustu

Sjúkradagpeningar

Félagar fá sjúkradagpeninga vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu sem nema 80% af grunni inngreiðslna síðastliðna fjóra mánuði fyrir óvinnufærni.

Líkamsrækt

Félagar fá allt að 20.000 króna styrk vegna líkamsræktar og íþróttaiðkunar.

Fæðingarstyrkur

Félagar fá 200.000 króna fæðingarstyrk vegna fæðingar hvers barns.

Tæknifrjóvgun

Félagar fá allt að 120.000 krónur í styrk vegna tækni- eða glasafrjóvgunar.

Ættleiðingarstyrkur

Félagar fá styrki vegna ferða til útlanda til að sækja barn til ættleiðingar.

Dánarbætur

Greiddar eru allt að 350.000 krónur í dánarbætur til erfingja vegna fráfalls félaga í sjóðnum.

Starfstengd áföll eða óvænt starfslok

Félagar fá styrk til að vinna úr áfalli í starfi eða í kjölfar óvæntra eða erfiðra starfsloka.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fim. 10:00 - 14:00
fös. 10:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt