Tján­ing­ar­frelsi og vernd upp­ljóstr­ara

Starfsfólk nýtur tjáningarfrelsis og á rétt á að greina frá lögbrotum á vinnustað án þess að gjalda þess. Opinberir starfsmenn njóta auk þess sérstakrar verndar samkvæmt stjórnsýslulögum.

Tjáningarfrelsi

Tjáningarfrelsi er verndað í 73. gr. stjórnarskrárinnar og 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Takmarkanir á því verða að byggjast á lögum, stefna að lögmætu markmiði og mega ekki ganga lengra en nauðsyn krefur.

Má ég tjá mig opinberlega um málefni vinnustaðarins?

Opinberir starfsmenn. Samkvæmt 41. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hefur hver sá sem starfar á vegum ríkis eða sveitarfélaga frelsi til að tjá sig opinberlega um atriði sem tengjast starfi hans, svo fremi sem þagnarskylda eða trúnaðar- og hollustuskyldur standa því ekki í vegi. Upplýsingar um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi starfsmanna stjórnvalda falla ekki undir þagnarskyldu.

Umboðsmaður Alþingis hefur fjallað um tjáningarfrelsi opinberra starfsmanna í nokkrum álitum:

  • Í máli nr. 11466/2022 taldi umboðsmaður að forstöðumanni væri óheimilt að takmarka tjáningarfrelsi starfsmanna, en honum væri heimilt, að gættum málefnalegum sjónarmiðum og meðalhófi, að bregðast við ummælum sem hefðu þýðingu fyrir starfsemi stofnunarinnar.
  • Í máli nr. 8741/2015 kom fram að tjáningarfrelsi opinberra starfsmanna kunni að sæta takmörkunum þegar tjáningin er liður í starfi þeirra.

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði nýtur einnig tjáningarfrelsis, en trúnaðarskylda gagnvart vinnuveitanda getur takmarkað það sem starfsmaður má segja um starfsemina.

Hvað er uppljóstrun?

Lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara gilda um starfsmenn sem í góðri trú greina frá upplýsingum eða miðla gögnum um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitanda. Lögin gilda á öllum vinnumarkaðnum.

  • Starfsmaður í skilningi laganna er hver sá sem hefur aðgang að upplýsingum vegna hlutverks síns, þar á meðal launafólk, sjálfstætt starfandi verktakar, stjórnarmenn, starfsnemar, tímabundið starfsfólk og sjálfboðaliðar. Verndin helst eftir að hlutverkinu lýkur.
  • Ámælisverð háttsemi er hátterni sem stefnir almannahagsmunum í hættu, til dæmis ógnar heilsu eða öryggi fólks eða umhverfi, án þess að um augljóst lagabrot sé að ræða.
  • Góð trú þýðir að starfsmaður hafi góða ástæðu til að telja upplýsingarnar réttar, að það sé í þágu almennings að miðla þeim og að hann eigi ekki annan kost til að koma í veg fyrir háttsemina.

Hvernig greini ég frá?

Innri uppljóstrun. Þrátt fyrir þagnar- eða trúnaðarskyldu er starfsmanni heimilt að miðla upplýsingum í góðri trú til aðila sem getur stuðlað að því að brugðist verði við. Það getur til dæmis verið næsti yfirmaður, lögregla eða opinberir eftirlitsaðilar á borð við umboðsmann Alþingis, ríkisendurskoðanda og Vinnueftirlit ríkisins. Starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga, og lögaðila sem eru að meiri hluta í opinberri eigu, er skylt að miðla slíkum upplýsingum.

Ytri uppljóstrun. Miðlun til utanaðkomandi aðila, þar á meðal fjölmiðla, er að jafnaði aðeins heimil ef innri uppljóstrun hefur fyrst verið reynd til þrautar án fullnægjandi viðbragða, og að uppfylltum nánari skilyrðum laganna.

Hvaða vernd nýt ég?

Miðlun sem uppfyllir skilyrði laganna telst ekki brot á þagnar- eða trúnaðarskyldu. Hún leggur hvorki refsi- né skaðabótaábyrgð á starfsmanninn og getur ekki leitt til stjórnsýsluviðurlaga. Komi til ágreinings fyrir dómi um stöðu starfsmanns á hann rétt á gjafsókn.

Fyrir starfsfólk ríkisins gildir jafnframt 13. gr. a laga nr. 70/1996: óheimilt er að láta starfsmann gjalda þess að hann greini viðeigandi aðilum frá lögbrotum eða brotum á siðareglum sem hann hefur orðið áskynja um í starfi.

Hvað á ég að gera?

  • Skráðu hjá þér hvað þú hefur orðið vitni að og hvenær.
  • Kannaðu hvort vinnustaðurinn hefur reglur um hvernig tilkynna skuli um brot.
  • Reyndu fyrst innri leiðir, nema sérstakar ástæður mæli gegn því.
  • Leitaðu ráðgjafar hjá stéttarfélaginu áður en þú miðlar upplýsingum út fyrir vinnustaðinn.

Ráðgjöf

Stéttarfélagið þitt veitir ráðgjöf um réttindi þín og skyldur. Leitaðu til þess sem fyrst ef þú færð boð á fund vegna meintra brota í starfi. Almennar upplýsingar eru á síðunni Skyldur starfsfólks.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt