Frí­dagar

Frídagar samkvæmt kjarasamningum skiptast í almenna frídaga, sérstaka frídaga og stórhátíðardaga. Fjöldi frídaga á virkum dögum er breytilegur milli ára, því sumir þeirra falla stundum á helgar.

Ríki og sveitarfélög

Almennir frídagar

Almennir frídagar eru laugardagar og sunnudagar (gr. 2.1.4.1).

Sérstakir frídagar (gr. 2.1.4.2)

  1. Nýársdagur
  2. Skírdagur
  3. Föstudagurinn langi
  4. Laugardagur fyrir páska
  5. Páskadagur
  6. Annar í páskum
  7. Sumardagurinn fyrsti
  8. 1. maí
  9. Uppstigningardagur
  10. Hvítasunnudagur
  11. Annar í hvítasunnu
  12. 17. júní
  13. Frídagur verslunarmanna
  14. Aðfangadagur eftir kl. 12:00
  15. Jóladagur
  16. Annar í jólum
  17. Gamlársdagur eftir kl. 12:00

Stórhátíðardagar (gr. 2.1.4.3)

  1. Nýársdagur
  2. Föstudagurinn langi
  3. Páskadagur
  4. Hvítasunnudagur
  5. 17. júní
  6. Aðfangadagur eftir kl. 12:00
  7. Jóladagur
  8. Gamlársdagur eftir kl. 12:00

Almennur vinnumarkaður

Í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM er notað hugtakið helgidagar, og flokkunin er önnur.

Almennir helgidagar (gr. 2.2.1)

  1. Skírdagur
  2. Laugardagur fyrir páska
  3. Annar í páskum
  4. Sumardagurinn fyrsti
  5. 1. maí
  6. Uppstigningardagur
  7. Annar í hvítasunnu
  8. Frídagur verslunarmanna
  9. Annar í jólum

Stórhátíðardagar (gr. 2.2.2)

  1. Nýársdagur
  2. Föstudagurinn langi
  3. Páskadagur
  4. Hvítasunnudagur
  5. 17. júní
  6. Aðfangadagur eftir kl. 12:00
  7. Jóladagur
  8. Gamlársdagur eftir kl. 12:00

Hvað er greitt fyrir vinnu á frídögum?

  • Ríkið, vaktavinnufólk: Vaktaálag er 55% kl. 08:00–24:00 á sérstökum frídögum og 120% á stórhátíðardögum, sjá vaktavinna.
  • Ríkið, dagvinnufólk: Vinna á frídegi er yfirvinna og greiðist samkvæmt kjarasamningi, sjá yfirvinna.
  • Almennur vinnumarkaður: Fyrir vinnu á helgidögum greiðast 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu á klukkustund og 1,375% á stórhátíðardögum, nema um annað sé samið. Þar sem reglubundið er unnið á vöktum á helgidögum ávinnur starfsfólk sér vetrarfrí.

Vaktavinnu- og hlutastarfsfólk

Í kjarasamningum eru sérstakar reglur um vaktavinnufólk og hlutastarfsfólk þegar frídagur fellur á vinnudag eða frídag samkvæmt vaktskrá. Aðildarfélagið veitir upplýsingar um þær reglur sem gilda samkvæmt viðkomandi samningi. Hjá ríkinu hafa einnig verið gefnar út leiðbeiningar um mönnun á stórhátíðardögum.

Um heimildir

Greinanúmer um ríkið vísa til ritstýrðs kjarasamnings Félags háskólakennara og ríkisins sem gildir frá 1. nóvember 2024. Kjarasamningar annarra aðildarfélaga BHM við ríkið eru byggðir upp með sama hætti en geta vikið frá í einstökum atriðum. Um almennan vinnumarkað er vísað til kjarasamnings SA og aðildarfélaga BHM sem gildir frá 1. maí 2025.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt