Hvaða reglur gilda um hlé?
Samkvæmt 4. gr. tilskipunar 2003/88/EB á starfsfólk rétt á hléi ef daglegur vinnutími er lengri en sex klukkustundir. Nánari útfærsla, svo sem lengd hlésins, er ákveðin í kjarasamningum eða lögum.
Samkvæmt 5. gr. laga nr. 88/1971 um 40 stunda vinnuviku teljast kaffihlé til vinnutíma, en um lengd þeirra og fjölda fer eftir samkomulagi aðila.
Starfsfólk ríkisins
Hlé og virkur vinnutími
- Matur og drykkur við vinnu: Starfsfólki er heimilt að neyta matar og drykkjar við vinnu sína þegar því verður við komið vegna starfsins (gr. 3.1.1). Slíkur tími telst til virks vinnutíma.
- Hlé á forræði starfsfólks: Með samkomulagi stjórnenda stofnunar og einfalds meirihluta þess starfsfólks sem málið varðar er heimilt að ákveða sérstök dagleg hlé sem eru á forræði starfsfólks (gr. 3.1.2). Hléin teljast ekki til virks vinnutíma og lengja því daglega viðveru sem þeim nemur.
- Vinna í hléi: Sé unnið í slíku hléi að beiðni yfirmanns er greitt fyrir það með yfirvinnukaupi.
Mötuneyti
- Aðgangur: Starfsfólk sem vinnur á föstum vinnustað skal hafa aðgang að matstofu eftir því sem við verður komið. Með matstofu er átt við stað þar sem unnt er að bera fram heitan og kaldan mat, hvort sem hann er aðfluttur eða eldaður á staðnum.
- Kostnaður: Starfsfólk greiðir efnisverð matar en stofnunin ber annan rekstrarkostnað.
- Ekkert mötuneyti á vinnustað: Sé mötuneyti ekki starfrækt á vinnustað skal eftir því sem unnt er tryggja starfsfólki aðgang að nærliggjandi mötuneyti á vegum vinnuveitanda.
- Eftirlit starfsfólks: Þar sem mötuneyti er starfrækt tilnefnir starfsfólk tvo trúnaðarmenn úr sínum hópi. Þeir hafa eftirlit með rekstrinum og aðgang að reikningum mötuneytisins.
Fæðispeningar
- Skilyrði: Starfsfólk á rétt á fæðispeningum ef það hefur ekki aðgang að matstofu þótt slíkur aðgangur eigi að vera fyrir hendi, eða ef það er á vakt þegar matstofa er lokuð. Dagleg vinnuskylda þarf að vera sex klukkustundir eða lengri.
- Fjárhæð: Fæðispeningar nema 638 kr. samkvæmt gr. 3.2.4.
- Verðbreytingar: Fjárhæðin breytist á þriggja mánaða fresti í samræmi við matvörulið vísitölu neysluverðs, miðað við vísitölu maímánaðar 2024 (gr. 3.2.5). Fjárhæðin hverju sinni getur því verið önnur en grunnfjárhæðin.
Máltíðir með skjólstæðingum
Starfsfólk sem vegna starfs síns þarf að matast með skjólstæðingum og aðstoða þá við borðhald greiðir ekki fyrir þær máltíðir. Þetta á þó ekki við ef tekið er tillit til þess með öðrum hætti, svo sem með styttri vinnutíma eða sérstakri greiðslu.
Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög
Frá 1. nóvember 2024 eru ekki sérstakir matar- og kaffitímar hjá dagvinnufólki Reykjavíkurborgar, en starfsfólki er heimilt að neyta matar og drykkjar við vinnu sína. Í kjarasamningum við sveitarfélög eru jafnframt ákvæði um mötuneyti og fæðispeninga. Fjárhæð fæðispeninga fer eftir viðkomandi samningi og aðildarfélagið veitir upplýsingar um hana.
Almennur vinnumarkaður
Samkvæmt kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM á starfsmaður rétt á að minnsta kosti 15 mínútna hléi ef daglegur vinnutími er lengri en sex klukkustundir (gr. 2.4.4). Hádegishlé, umfram greidd neysluhlé, telst ekki til greidds vinnutíma. Í vaktavinnu skulu neysluhlé jafnan vera 15 mínútur samfellt.
Um heimildir
Greinanúmer um ríkið vísa til ritstýrðs kjarasamnings Félags háskólakennara og ríkisins sem gildir frá 1. nóvember 2024. Kjarasamningar annarra aðildarfélaga BHM við ríkið eru byggðir upp með sama hætti en geta vikið frá í einstökum atriðum. Um almennan vinnumarkað er vísað til kjarasamnings SA og aðildarfélaga BHM sem gildir frá 1. maí 2025.