Starfsfólk ríkisins
Með breytingum á skipulagi vaktavinnu árið 2021 var vinnuvika vaktavinnufólks í fullu starfi stytt í 36 virkar vinnustundir. Vinnuskylda getur styst frekar á grundvelli vægis vinnuskyldustunda, og greiddur er vaktahvati samkvæmt nánari reglum kjarasamnings. Nánari upplýsingar eru á Mannauðstorgi ríkisins.
Vaktaálag
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi og er meðal annars sem hér segir (gr. 1.6.1):
- 33,33% kl. 17:00–24:00 mánudaga til fimmtudaga.
- 65% kl. 00:00–08:00 þriðjudaga til föstudaga.
- 55% kl. 08:00–24:00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga.
- 120% kl. 00:00–24:00 stórhátíðardaga.
Önnur álagsþrep gilda á öðrum tímum samkvæmt kjarasamningi. Brot úr klukkustund greiðist hlutfallslega.
Vaktskrá
- Drög að vaktskrá skulu liggja fyrir sex vikum áður en hún tekur gildi (gr. 2.6.2).
- Endanleg vaktskrá skal lögð fram mánuði áður en fyrsta vakt samkvæmt henni hefst, nema samkomulag sé um skemmri frest.
- Sé vaktskrá breytt með skemmri fyrirvara en 24 klukkustundum skal greiða breytingargjald sem nemur 2% af mánaðarlaunum í viðkomandi launaflokki og þrepi.
- Sé fyrirvarinn 24–168 klukkustundir (ein vika) nemur breytingargjaldið 1,3%.
Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög
Hjá Reykjavíkurborg er vaktaálag á stórhátíðardögum 120%. Frá kl. 16:00–24:00 á aðfangadag og gamlársdag og kl. 00:00–08:00 á jóladag og nýársdag er álagið 165%. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur birt kynningarefni um breytingar á vaktavinnu. Aðildarfélagið veitir upplýsingar um ákvæði gildandi samninga.
Almennur vinnumarkaður
Samkvæmt gr. 2.6 í kjarasamningi SA og aðildarfélaga BHM:
- Vaktavinna er heimil með samkomulagi við starfsmann.
- Vaktir eru að jafnaði ákveðnar fyrir fjórar vikur í senn. Vaktskrá skal lögð fram mánuði áður en fyrsta vakt hefst, nema samið sé um skemmri frest.
- Vaktaálag er 33% kl. 18:00–24:00 mánudaga til fimmtudaga og 45% á nóttunni og um helgar.
- Þar sem reglubundið er unnið á vöktum á helgidögum er álagið 45% á helgidögum og 90% á stórhátíðardögum. Starfsfólk ávinnur sér þá jafnframt vetrarfrí.
- Neysluhlé skulu jafnan vera 15 mínútur samfellt.
Hvíld milli vakta og lengd vakta
Við skipulag vakta gilda reglur um 11 stunda samfellda hvíld á sólarhring, vikulegan frídag og 48 stunda hámarksvinnutíma að meðaltali. Við skipulögð vaktaskipti má stytta hvíld í allt að átta klukkustundir. Æskilegt er að vaktir færist réttsælis eftir sólarhringnum, það er morgunvakt, kvöldvakt, næturvakt og síðan hvíld.
Um hvíld, næturvinnu og frítökurétt er nánar fjallað á síðunni dagleg og vikuleg hvíld. Stýrihópur um vaktavinnu hefur einnig gefið út leiðbeiningar um lengd vakta.
Um heimildir
Greinanúmer um ríkið vísa til ritstýrðs kjarasamnings Félags háskólakennara og ríkisins sem gildir frá 1. nóvember 2024. Kjarasamningar annarra aðildarfélaga BHM við ríkið eru byggðir upp með sama hætti en geta vikið frá í einstökum atriðum. Um almennan vinnumarkað er vísað til kjarasamnings SA og aðildarfélaga BHM sem gildir frá 1. maí 2025.