Yf­ir­vinna

Yfirvinna er vinna utan tilskilins daglegs vinnutíma eða vaktar og vinna umfram vikulega vinnuskyldu. Hér er fjallað um skyldu til að vinna yfirvinnu, greiðslur, útköll og frí í stað yfirvinnu.

Hvenær telst vinna vera yfirvinna?

Samkvæmt kjarasamningum telst yfirvinna sú vinna sem fer fram utan tilskilins daglegs vinnutíma eða vaktar starfsmanns, svo og vinna sem innt er af hendi umfram vikulega vinnuskyldu, þótt hún sé unnin á dagvinnutímabili.

Yfirvinna þarf að jafnaði að vera unnin að beiðni eða með samþykki yfirmanns. Gott er að fá staðfestingu á yfirvinnu skriflega og halda eigin skrá yfir unna tíma.

Er mér skylt að vinna yfirvinnu?

  • Starfsfólk ríkisins: Samkvæmt 17. gr. laga nr. 70/1996 er starfsfólki skylt að vinna þá yfirvinnu sem forstöðumaður telur nauðsynlega, með þeim takmörkunum sem nánar greinir í ákvæðinu.
  • Annað starfsfólk: Skylda til yfirvinnu ræðst af ráðningarsamningi og kjarasamningi.
  • Mörk: Skylda til yfirvinnu takmarkast alltaf af reglum um daglega og vikulega hvíld og 48 stunda hámarksvinnutíma að meðaltali, sjá dagleg og vikuleg hvíld.

Hvernig er greitt fyrir yfirvinnu?

Ríkið:

  • Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum og á við um vinnu kl. 08:00–17:00 mánudaga til föstudaga (gr. 1.5.1).
  • Tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum og á við um vinnu á öðrum tímum. Yfirvinna 2 greiðist einnig fyrir vinnu umfram 38,92 stundir á viku.

Reykjavíkurborg: Sömu hlutföll gilda, 0,9385% fyrir yfirvinnu 1 og 1,0385% fyrir yfirvinnu 2, og yfirvinna 2 greiðist einnig fyrir vinnu umfram 38,92 stundir á viku.

Almennur vinnumarkaður (SA):

  • Tímakaup fyrir yfirvinnu og vinnu á helgidögum er 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu, nema um annað sé samið.
  • Fyrir vinnu á stórhátíðardögum er tímakaupið 1,375%.
  • Heimilt er að semja um að greiða eftirvinnu, 0,875% af mánaðarlaunum, upp að fullum umsömdum vinnutíma.

Útköll

Útkall er þegar starfsmaður er kallaður til vinnu sem er ekki í beinu framhaldi af daglegri vinnu hans.

  • Ríkið: Greitt er yfirvinnukaup fyrir að minnsta kosti 3 klukkustundir (gr. 2.3.3.1). Á tilteknum tímum, svo sem að næturlagi á virkum dögum, er greitt fyrir að minnsta kosti 4 klukkustundir (gr. 2.3.3.2).
  • Almennur vinnumarkaður: Þegar samið er um bakvakt skal jafnframt semja um lágmarksgreiðslu fyrir útköll.

Um útköll á bakvakt er fjallað á síðunni um bakvaktir, útköll og ferðatíma.

Frí í stað yfirvinnu

  • Ríkið: Með samkomulagi við yfirmann má veita 1,62 klukkustundir í frí í dagvinnu fyrir hverja yfirvinnustund (gr. 2.3.8). Frí sem ekki hefur verið tekið fyrir 15. apríl árið eftir er greitt út á dagvinnutaxta.
  • Almennur vinnumarkaður: Heimilt er með samkomulagi að greiða fyrir yfirvinnu og eftirvinnu með fríi á dagvinnutímabili. Sé ekki samið um annað miðast verðgildi frísins við unna tíma að viðbættu viðeigandi álagi.

Frí í stað yfirvinnu er annað en frítökuréttur vegna skertrar hvíldar. Um frítökurétt er fjallað á síðunni um daglega og vikulega hvíld.

Föst yfirvinna og heildarlaun

Í sumum störfum er samið um greiðslu fyrir fastan fjölda yfirvinnustunda á mánuði, oft nefnt föst yfirvinna eða yfirvinna á föstum forsendum. Einnig tíðkast að semja um heildarlaun þar sem yfirvinna er innifalin.

Í slíkum samningi þarf að koma skýrt fram hvort hann taki til allrar yfirvinnu eða hvort greitt sé sérstaklega fyrir yfirvinnu umfram umsamdar stundir. Reglur um hvíld og hámarksvinnutíma gilda óháð launafyrirkomulagi.

Um uppsögn samninga um fasta yfirvinnu er fjallað á síðunni breytingar á störfum og starfskjörum. Þar er meðal annars fjallað um dóm Hæstaréttar í máli nr. 3/2024.

Ágreiningur um yfirvinnu

Atvinnurekanda er skylt að skrá vinnutíma starfsfólks, og starfsfólk á rétt á aðgangi að skráningunni, sjá skráning vinnutíma. Skráningin skiptir miklu máli ef ágreiningur verður um unna yfirvinnu. Í dómi Landsréttar í máli nr. 276/2026 var atvinnurekandi, sem hafði ekki skráð vinnutíma, látinn bera hallann af sönnunarskorti um umfang yfirvinnu, sjá nánar frétt BHM um dóminn.

Leitaðu til aðildarfélagsins ef þú telur að yfirvinna hafi ekki verið greidd.

Um heimildir

Greinanúmer um ríkið vísa til ritstýrðs kjarasamnings Félags háskólakennara og ríkisins sem gildir frá 1. nóvember 2024. Kjarasamningar annarra aðildarfélaga BHM við ríkið eru byggðir upp með sama hætti en geta vikið frá í einstökum atriðum. Um almennan vinnumarkað er vísað til kjarasamnings SA og aðildarfélaga BHM sem gildir frá 1. maí 2025.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt