Skrán­ing vinnu­tíma

Atvinnurekendum er skylt að skrá vinnutíma starfsfólks í hlutlægu, áreiðanlegu og aðgengilegu kerfi. Starfsfólk á rétt á að nálgast upplýsingar um eigin vinnutíma tólf mánuði aftur í tímann.

Hvað á að skrá?

Samkvæmt 57. gr. a laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sem bætt var við lögin með lögum nr. 58/2023, er atvinnurekendum skylt að koma upp hlutlægu, áreiðanlegu og aðgengilegu kerfi til skráningar á vinnutíma starfsfólks. Þar skulu meðal annars koma fram upplýsingar um:

  • daglegan og vikulegan vinnutíma,
  • á hvaða tíma sólarhrings unnið er,
  • samfelldan hvíldartíma og vikulegan frídag,
  • tilvik þar sem vikið hefur verið frá reglum um hvíldartíma og vikulegan frídag samkvæmt lögunum eða kjarasamningum, og hvort starfsfólk hafi í slíkum tilvikum fengið hvíld síðar.

Sé vinnutími starfsmanns að jafnaði reglubundinn nægir að hann sé skráður í ráðningarsamningi. Frávik frá þeim vinnutíma skal þá skrá sérstaklega.

Réttur starfsfólks til upplýsinga

Starfsmaður á rétt á að nálgast upplýsingar um skráningu eigin vinnutíma og frávik frá hvíldarreglum tólf mánuði aftur í tímann.

Hvers vegna var skráningarskyldan lögfest?

Ákvæðið var sett í kjölfar athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA. Tilefnið var dómur Evrópudómstólsins í máli C-55/18 (CCOO) frá 14. maí 2019. Þar komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að aðildarríki verði að skylda atvinnurekendur til að koma upp kerfi til að skrá daglegan vinnutíma hvers starfsmanns, svo unnt sé að ganga úr skugga um að reglur um hámarksvinnutíma og lágmarkshvíld séu virtar.

Samkvæmt nefndaráliti með frumvarpinu er tilgangur skráningarinnar að Vinnueftirlitið, eða eftir atvikum dómstólar, geti metið hvort reglur um hámarksvinnutíma, lágmarkshvíld og vikulegan frídag séu virtar. Jafnframt á skráningin að tryggja að starfsfólk fái hvíld síðar þegar vikið er frá hvíldarreglum.

Hagnýt atriði

  • Lögin mæla ekki fyrir um tiltekna aðferð eða tækni við skráningu.
  • Skráningin skiptir miklu máli ef ágreiningur verður um unna yfirvinnu eða frítökurétt. Í dómi Landsréttar í máli nr. 276/2026 var atvinnurekandi, sem hafði ekki skráð vinnutíma, látinn bera hallann af sönnunarskorti um umfang yfirvinnu, sjá frétt BHM um dóminn.
  • Gott er að halda jafnframt eigin skrá yfir vinnutíma.
  • Vinnueftirlitið hefur eftirlit með því að reglum um vinnutíma og hvíld sé fylgt og hefur birt leiðbeiningar um skráningu vinnutíma.
  • Leitaðu til aðildarfélagsins ef þú færð ekki aðgang að upplýsingum um eigin vinnutíma.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt