Hvað er bakvakt?
Bakvakt er tími þar sem starfsmaður er ekki við störf en þarf að vera reiðubúinn að sinna útkalli utan venjulegs vinnutíma. Dvöl á vinnustað að beiðni yfirmanns er ekki bakvakt heldur vinna.
Telst bakvakt til vinnutíma?
Evrópudómstóllinn hefur fjallað um hvenær bakvakt telst vinnutími í skilningi tilskipunar 2003/88/EB. Í dómum yfirdeildar dómstólsins 9. mars 2021 í málum C-344/19, Radiotelevizija Slovenija, og C-580/19, Stadt Offenbach am Main, var komist að eftirfarandi niðurstöðu:
- Bakvakt telst í heild vinnutími ef þær takmarkanir sem lagðar eru á starfsmann hafa hlutlægt og mjög veruleg áhrif á möguleika hans til að ráða tíma sínum sjálfur og sinna eigin hugðarefnum.
- Við matið skiptir einkum máli hve skjótt starfsmaður þarf að bregðast við og hve oft hann er að jafnaði kallaður út.
- Erfiðleikar sem stafa af náttúrulegum aðstæðum eða af vali starfsmannsins sjálfs, til dæmis hve langt frá vinnustað hann býr, skipta ekki máli.
- Ef bakvakt telst ekki vinnutími verður atvinnurekandi engu að síður að gæta að heilsu og öryggi starfsfólks, til dæmis þegar bakvaktir eru tíðar eða langvarandi.
Ákvæði laga nr. 46/1980 eru orðuð til samræmis við tilskipunina. Hæstiréttur hefur lagt til grundvallar að þegar lög eru orðuð á sama veg og EES-reglur verði að ganga út frá því að þau hafi sama efnisinntak og þær reglur sem þau eiga að innleiða.
Tilskipunin fjallar ekki um laun. Þótt bakvakt teljist vinnutími í skilningi hennar leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að greiða eigi fyrir hana eins og aðra vinnu. Greiðslur ráðast af kjarasamningum.
Greiðslur fyrir bakvaktir
Ríkið:
- Greitt er bakvaktaálag sem reiknast af dagvinnukaupi.
- Í stað greiðslu má veita frí. Þannig jafngilda 20 mínútna frí 33,33% álagi og 27 mínútna frí 45% álagi (gr. 2.5.2).
- Fyrir reglubundna bakvakt skal veita frí sem nemur mest 80 klukkustundum fyrir hverjar 1.200 klukkustundir á bakvakt (gr. 2.5.4).
Reykjavíkurborg: Sambærileg regla gildir um bakvaktafrí, mest 80 klukkustundir fyrir 1.200 klukkustundir á bakvakt. Um útköll á bakvakt gilda sérstök ákvæði kjarasamnings.
Almennur vinnumarkaður (SA):
- Fyrir hverja klukkustund á bakvakt þar sem starfsmaður er bundinn heima greiðast 33% af dagvinnustund, eða 50% á almennum frídögum og stórhátíðum.
- Fyrir bakvakt þar sem ekki er krafist tafarlausra viðbragða greiðast 16,5% af dagvinnukaupi á klukkustund, eða 25% á frídögum og stórhátíðum.
- Jafnframt skal semja um lágmarksgreiðslu fyrir útköll.
Útköll og hvíld
Þegar starfsmaður er kallaður út telst vinnan vinnutími. Útkall getur rofið daglega hvíld og skapað frítökurétt samkvæmt kjarasamningi, sjá dagleg og vikuleg hvíld. Um lágmarksgreiðslur fyrir útköll er fjallað á síðunni um yfirvinnu.
Ferðatími
Ferðir milli heimilis og fastrar starfsstöðvar teljast almennt ekki vinnutími. Öðru máli gegnir um ferðir á vegum vinnuveitanda til annars áfangastaðar en fastrar eða hefðbundinnar starfsstöðvar.
- EFTA-dómstóllinn: Í máli E-11/20 frá 15. júlí 2021 fjallaði dómstóllinn um ferðir íslensks starfsmanns á vegum vinnuveitanda til útlanda. Áður hafði dómstóllinn fjallað um ferðatíma í máli E-19/16.
- Hæstiréttur: Í dómi Hæstaréttar 15. maí 2024 í máli nr. 52/2023 var komist að þeirri niðurstöðu að tími sem starfsmaður varði í ferðir á vegum vinnuveitanda til útlanda, utan hefðbundins vinnutíma og ótengdar fastri starfsstöð, teldist vinnutími í skilningi 1. tölul. 52. gr. laga nr. 46/1980. Með dóminum var staðfest niðurstaða Landsréttar í máli nr. 197/2022.
- Greiðsla: Dómurinn fjallar ekki um greiðsluskyldu. Opinberir launagreiðendur hafa engu að síður lýst því yfir að tími sem starfsfólk ver í ferðir að kröfu vinnuveitanda, til annars áfangastaðar en fastrar eða hefðbundinnar starfsstöðvar, skuli greiddur eins og annar vinnutími. Þetta kemur meðal annars fram í bókun 5 í kjarasamningi ríkisins og Þroskaþjálfafélags Íslands frá 19. desember 2024. Á almennum vinnumarkaði fer greiðsla eftir kjarasamningi og ráðningarsamningi.
Nánar er fjallað um greiðslur vegna ferða á síðunni ferðir utan hefðbundins vinnutíma.
Um heimildir
Greinanúmer um ríkið vísa til ritstýrðs kjarasamnings Félags háskólakennara og ríkisins sem gildir frá 1. nóvember 2024. Kjarasamningar annarra aðildarfélaga BHM við ríkið eru byggðir upp með sama hætti en geta vikið frá í einstökum atriðum. Um almennan vinnumarkað er vísað til kjarasamnings SA og aðildarfélaga BHM sem gildir frá 1. maí 2025.