
Andri Valur hefur starfað sem lögmaður BHM frá vordögum 2017 og er því aðildarfélögum BHM að góðu kunnur. Hann þekkir starfsemi BHM vel og hefur á undanförnum árum komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir bandalagið og aðildarfélög þess, ekki síst á sviði vinnumarkaðs- og kjaramála.
Andri Valur er með BA-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og BA- og MA-gráðu í lögfræði frá sama skóla auk lögmannsréttinda. Andri Valur býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á vinnumarkaðs- og kjaramálum og hefur um langt skeið fylgst náið með þróun, uppbyggingu og hagsmunabaráttu stéttarfélaga háskólamenntaðra.

„Stjórn BHM er afar ánægð með ráðningu Andra Vals í starf framkvæmdastjóra. Hann þekkir starfsemi bandalagsins og aðildarfélaga þess mjög vel og býr yfir víðtækri reynslu og fagþekkingu á þeim málefnum sem eru kjarninn í starfsemi BHM. Andri Valur nýtur mikils trausts og stjórnin er sannfærð um að hann muni leiða starf bandalagsins áfram af festu og metnaði,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM.
Andri Valur segist þakklátur fyrir traustið sem honum er sýnt með ráðningunni. „Það hefur verið bæði gefandi og lærdómsríkt að starfa fyrir BHM undanfarin ár. Ég þekki því vel þann mikla mannauð og metnað sem býr innan bandalagsins og aðildarfélaga þess. Ég hlakka til að takast á við nýtt hlutverk og halda áfram að vinna að öflugri hagsmunagæslu fyrir háskólamenntað fólk í góðu samstarfi við stjórn, starfsfólk og aðildarfélög BHM,“ segir Andri
Stjórn BHM býður Andra Val velkominn í starf framkvæmdastjóra BHM.





