
Aðeins einn af hverjum átta háskólastúdentum tekur nú námslán og hlutfallið hefur aldrei verið lægra. Skólaárið 2024–2025 tóku 12,5% háskólastúdenta námslán, samanborið við 35% skólaárið 2015–2016. Á sama tíma vinna hátt í 80% íslenskra háskólastúdenta með námi. Um þessa þróun er fjallað í nýlegum fréttum RÚV um fækkun háskólanema sem taka námslán og fælingarmátt námslánakerfisins.
Íslenskir háskólanemar búa oftar hjá foreldrum en háskólanemar annars staðar á Norðurlöndunum, 24,3% samanborið við 4,2–16,5%, eftir löndum (EUROSTUDENT VIII, 2021–2024).
BHM og LÍS hafa kallað eftir breytingum
BHM og LÍS hafa unnið saman að því að greina áhrif námslánakerfisins á stöðu og kjör námsfólks. Í maí kynntu samtökin skýrsluna Árangur eða afturför? Áhrif og afleiðingar nýrra laga um Menntasjóð námsmanna eftir Nönnu Hermannsdóttur hagfræðing. Þar voru meðal annars skoðuð áhrif námslánakerfisins á fjárhagsstöðu og námsaðstæður stúdenta og hvort markmið laganna hefðu náðst.
Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti LÍS, segir í umfjöllun RÚV að námslánakerfið hafi ákveðinn fælingarmátt. Fækkun lántakenda gefur tilefni til að spyrja hvort kerfið nái nægilega vel grundvallarmarkmiði sínu um að jafna tækifæri fólks til náms óháð efnahag.
Frá námsárunum yfir á húsnæðismarkaðinn
BHM hefur einnig beint sjónum að því sem tekur við að námi loknu. Í nýju Hagkorni BHM, Hver kemst inn og hver bíður? Ungt fólk á húsnæðismarkaði, kemur fram að fjárhagslegt bakland getur skipt miklu máli bæði á námsárunum og þegar kemur að fyrstu húsnæðiskaupum.
Meðal annars kemur fram að 62% svarenda 34 ára og yngri sem höfðu keypt eða reynt að kaupa húsnæði höfðu fengið fjárhagsaðstoð frá öðrum en lánastofnunum. Þá töldu 64% yngri svarenda skort á eigin fé vega þyngra en greiðslumat eða of háar afborganir sem hindrun við húsnæðiskaup.
Hagkornið dregur þannig fram samhengi námsára og stöðunnar síðar á lífsleiðinni: fjárhagslegt bakland getur haft áhrif á möguleika fólks til að einbeita sér að námi, safna eigin fé og komast inn á húsnæðismarkað.
Ungt fólk á bið
Þessi tengsl voru jafnframt í brennidepli á hádegisfundi BHM og LÍS: Ungt fólk á bið í Norræna húsinu 10. nóvember. Þar var fjallað um námslán, húsnæðismarkaðinn og þær hindranir sem ungt fólk mætir á leiðinni frá námi til fjárhagslegs sjálfstæðis.
Á fundinum kynnti Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM, Hagkornið um stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði og Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS, fjallaði um stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði. Í pallborði var síðan rætt hvernig stytta mætti leið ungs fólks til sjálfstæðis.
Fjárhagur á ekki að ráða tækifærum
Niðurstöðurnar draga saman stærri mynd sem BHM og LÍS hafa lagt áherslu á: Tækifæri til menntunar og fjárhagslegs sjálfstæðis eiga ekki að ráðast af efnahag eða því hvaða stuðning fólk getur fengið frá fjölskyldu sinni.
Námslánakerfi sem sinnir jöfnunarhlutverki sínu, ásamt raunhæfum möguleikum ungs fólks til að komast inn á húsnæðismarkað, er því ekki aðeins hagsmunamál stúdenta heldur mikilvægt jafnréttismál.






