Árangur eða afturför? Áhrif og afleiðingar nýrra laga um Menntasjóð námsmanna.

Ný greining varpar ljósi á veikleika námslánakerfisins: Markmið 2020-breytinga ekki að skila sér. Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) og BHM efndu til hádegisfundar í dag þar sem kynntar voru niðurstöður nýrrar greiningar á íslenska námslánakerfinu. Greiningin fjallar um afleiðingar nýs námslánakerfis, sem var kynnt sem veruleg kjarabót fyrir stúdenta, en margfalt hærri vextir og skortur á sveigjanleika í kerfinu hafa gert íslensk námslán verri fyrir stúdenta.

Ljósmynd: Nanna Hermannsdóttir hagfræðingur og höfundur skýrslunnar.

Niðurstöður greiningarinnar eru meðal annars að núverandi námslánakerfi grafi undan markmiðum atvinnustefnu Íslands og eigin lögbundna hlutverki sem „félagslegur jöfnunarsjóður“.

Greiningin fer fram á mikilvægum tímamótum, en fyrstu lántakar nýja kerfisins hafa nú hafið endurgreiðslur og lögbundin heildarendurskoðun laganna er framundan.

Nanna Hermannsdóttir hagfræðingur kynnti helstu niðurstöður greiningarinnar á fundinum og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, var sérstakur gestur og tók þátt í umræðum.

Í greiningunni er meðal annars fjallað um:

  • Hver markmið nýs námslánakerfis voru og hvers vegna þau náðust ekki
  • Áhrif hærri vaxta og breyttra skilyrða á stöðu námsmanna
  • Samanburð við námslánakerfi á Norðurlöndum

Með skýrslunni er ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um framtíð námsstuðnings á Íslandi.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fim. 10:00 - 14:00
fös. 10:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt