
Á fundinum var fjallað um reynsluna af covid-19-faraldrinum og atburðunum í Grindavík, nýtt frumvarp um almannavarnir og um það hvernig tryggja megi að réttindi, skyldur og ábyrgð starfsfólks liggi skýrt fyrir áður en næsta áfall ríður yfir.
Breytt öryggisumhverfi, fjölþáttaógnir, netárásir, náttúruvá og reynsla síðustu ára kalla á aukinn viðbúnað íslensks samfélags. Í umræðu um viðbúnað hefur sjónum einkum verið beint að mikilvægum innviðum, stjórnskipulagi og viðbragðsáætlunum. Á fundi BHM var hins vegar lögð áhersla á að mannauðurinn sjálfur væri ekki síður mikilvægur innviður.
Þegar áfall verður þarf starfsfólk að mæta til vinnu, taka að sér önnur verkefni en það sinnir alla jafna og vinna undir miklu álagi, stundum við ófyrirséðar aðstæður. Þá vakna jafnframt spurningar um vinnuskyldu, vinnutíma og hvíld, vinnuvernd, laun og önnur starfskjör, breytingar á verkefnum og starfsstöð og um það hver hafi heimild til að taka ákvarðanir og beri ábyrgð á þeim.
Dýrmæt reynsla heilbrigðisstétta
Umræður fulltrúa háskólamenntaðra heilbrigðisstétta um reynsluna af covid-19-faraldrinum voru veigamikill þáttur fundarins. Þar kom skýrt fram hve mikil áhrif hann hafði á skipulag vinnu, vinnuskyldu og daglegt starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks.
Starfsfólk þurfti að bregðast hratt við síbreytilegum aðstæðum, axla aukna ábyrgð og taka á sig mikið vinnuálag, oft í mikilli óvissu. Á sama tíma var ekki alltaf nægilega skýrt hvernig staðið skyldi að ákvarðanatöku, hvar ábyrgð lægi, hvernig breytingum á vinnutilhögun yrði háttað eða hvernig samskiptum við starfsfólk og stéttarfélög væri fyrir komið.
Sambærileg álitaefni hafa komið upp vegna jarðhræringanna og náttúruhamfaranna í Grindavík. Þar hefur enn á ný reynt á starfsfólk og stofnanir sem þurfa að tryggja mikilvæga þjónustu við óvenjulegar og krefjandi aðstæður.
Þátttakendur á fundinum töldu afar mikilvægt að varðveita þessa reynslu og draga af henni lærdóm. Bent var á að ekki hefði farið fram nægilega heildstætt uppgjör á faraldrinum frá sjónarhóli vinnumarkaðarins og starfsfólksins sjálfs: Hvað gekk vel? Hvað hefði mátt fara betur? Hvaða áhrif hafði langvarandi álag á heilbrigðisstarfsfólk? Hvernig reyndust ferli við ákvarðanatöku og samskipti stjórnenda, starfsfólks og stéttarfélaga?
Meginlærdómurinn er einfaldur: í miðju áfalli er ekki svigrúm til að semja um leikreglurnar. Umgjörð um réttindi, skyldur, ábyrgð, samráð og hugsanlegar tímabundnar breytingar á vinnutilhögun þarf eftir föngum að liggja fyrir áður en neyðarástand skapast.
BHM vill skýrari stöðu vinnumarkaðarins í almannavörnum
Á fundinum var einnig fjallað um frumvarp til nýrra heildarlaga um almannavarnir sem ríkisstjórnir stefnir að leggja fram á Alþingi í október nk. Markmið frumvarpsins er meðal annars að efla getu samfélagsins til að búa sig undir alvarleg áföll, bregðast við þeim og vinna úr afleiðingum þeirra, auk þess að auka samhæfingu og áfallaþol.
BHM telur mikilvægt að styrkja almannavarnir og viðbúnað samfélagsins en hefur jafnframt bent á að kveða þurfi mun skýrar á um stöðu vinnumarkaðarins, starfsfólks og samtaka launafólks innan þeirrar umgjarðar.
BHM hyggst því senda dómsmálaráðherra erindi þar sem þess verður óskað að sjónarmiðin verði tekin til skoðunar í áframhaldandi vinnu við frumvarpið. Í erindinu mun BHM sérstaklega leggja áherslu á að aðilar vinnumarkaðarins komi með formlegum hætti að undirbúningi og samhæfingu viðbragða og að mótaður verði fyrir fram skilgreindur rammi um stöðu vinnumarkaðarins þegar alvarleg áföll verða.
Málþing um reynsluna og næstu skref
Ein af niðurstöðum fundarins var að BHM myndi efna til málþings þar sem reynslan af þeim miklu áföllum sem dunið hafa yfir á síðustu árum yrði tekin til ítarlegrar umræðu.
Þar er mikilvægt að leiða saman fólk sem hefur starfað í framlínu við erfiðar aðstæður, fulltrúa þeirra sem skipulögðu viðbrögðin og stýrðu þeim, stjórnendur, stéttarfélög og aðra sem komu að ákvarðanatöku.
Markmiðið verður ekki síst að gera upp reynsluna af faraldrinum og atburðunum í Grindavík og greina hvaða lærdóm megi draga af henni til að búa vinnumarkaðinn undir næsta áfall.
Áfallaþol verður ekki byggt upp eftir að neyðin er skollin á. Leikreglur um samráð, ábyrgð og réttindi þurfa að vera skýrar fyrir fram og starfsfólkið sem heldur samfélaginu gangandi þegar mest á reynir þarf að eiga beina aðild að mótun þeirra.







