
Mannmiðuð gervigreind og aukið eftirlit á vinnustöðum
ETUC gerir kröfu um bindandi reglur um notkun gervigreindar og reikniritastýrðrar stjórnunar á vinnustöðum. Málefnið varðar jafnt háskólamenntaða sérfræðinga sem annað launafólk. Að mati ETUC þarf að tryggja gagnsæi og skýra meginreglu um að mannlegt eftirlit, ákvörðunarvald og ábyrgð séu ávallt til staðar, meðal annars til að koma í veg fyrir óhóflegt eftirlit með starfsfólki.
Vinnuvernd, sálfélagsleg áhætta og loftslagsbreytingar
ETUC fagnar áformum um að uppfæra vinnuverndarreglur með aukinni áherslu á sálfélagslega áhættu, svo sem kulnun og streitu. Jafnframt er kallað eftir bindandi reglum til verndar starfsfólki gegn hættum vegna mikils hita og annarra áhrifa loftslagsbreytinga á vinnuumhverfi.
Aðfangakeðjur, undirverktakar og réttindi launafólks
Til að vinna gegn félagslegum undirboðum og misnotkun launafólks leggur ETUC áherslu á að komið verði á óskiptri ábyrgð (joint and several liability) innan flókinna aðfangakeðja. Einnig er kallað eftir takmörkunum á undirverktöku í áhættugreinum og strangari reglum um starfsemi vinnumiðlana.
Græn og stafræn umskipti á vinnumarkaði
ETUC leggur áherslu á að launafólk eigi rétt á endur- og símenntun þegar tæknibreytingar eða önnur umskipti hafa áhrif á störf þess. Slík fræðsla fari fram á vinnutíma og án kostnaðar fyrir starfsfólk. Jafnframt verði fyrirtækjum gert að móta áætlanir, í samráði við stéttarfélög, um áhrif grænna og stafrænna umskipta á störf, hæfnikröfur og starfsskilyrði.
Efling eftirlits og staða stéttarfélaga
Loks leggur ETUC áherslu á að vinnumarkaðseftirlit verði styrkt og því tryggð fullnægjandi fjármögnun. Þá verði réttur stéttarfélaga til aðgangs að vinnustöðum tryggður, meðal annars til að efla eftirlit með starfsskilyrðum og vinna gegn misnotkun ótryggra og óstöðugra ráðningarforma.
BHM styður þessar áherslur ETUC sem aðildarsamtök sambandsins. Skrifstofa BHM mun fylgjast náið með framgangi málsins á vettvangi Evrópusambandsins.






