Morgunverðarfundur um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði

BHM boðar til morgunverðarfundar um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði fimmtudaginn 27. ágúst kl. 9:00–10:30 í Norræna húsinu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:30.

Á fundinum verða kynntar nýjar og ítarlegar niðurstöður úr könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði. Sérstök áhersla verður lögð á stöðu fólks á leigu- og eignamarkaði fyrstu tíu árin eftir námslok.

Könnunin var unnin fyrir aðildarfélög BHM og félög háskólamenntaðs fólks utan bandalagsins, meðal annars félög lækna, hjúkrunarfræðinga, verkfræðinga, lyfjafræðinga og byggingarfræðinga.

Niðurstöðurnar varpa ljósi á þær áskoranir sem mæta háskólamenntuðu fólki þegar það stígur sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði. Meðal þess sem farið verður yfir, er hvort og hvenær fólk nær að eignast húsnæði, staða þess á leigumarkaði og hvernig húsnæðiskostnaður hefur áhrif á fjárhag og lífskjör að námi loknu.

Dagskrá

09:00 – Setning fundar
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

Kynning á niðurstöðum könnunar
Inga Rún Sæmundsdóttir, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands

Erindi
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður Visku

Pallborðsumræður
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands

10:30 – Fundarslit
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

Fundurinn er öllum opinn og verður honum streymt.

Morgunverðarfundur 27. ágúst - skráning

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Sumaropnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt