
Þessu ber að fagna, enda til marks um samstöðu um þau meginmarkmið síðustu kjarasamninga að halda verðbólgu og vaxtastigi í skefjum. Það skiptir máli fyrir samfélagið sem heild að kjarabætur launafólks hverfi ekki vegna gjaldskrárbreytinga og almennra verðhækkana. En við ættum ekki aðeins að spyrja hversu mikið verð hækkar, heldur hvers vegna.
Í nýrri skýrslu starfshóps aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, Valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum, er fjallað um útbreitt „verðtryggingarhugarfar“, sem nauðsynlegt sé að bregðast við með afgerandi hætti ekki síst í þágu heimilanna í landinu. Nú er tækifæri til að takast á við það.
Vísitalan segir ekki alla söguna
Vísitala neysluverðs mælir almenna verðlagsþróun, ekki kostnað einstakra fyrirtækja. Þegar verð fylgir henni sjálfkrafa getur það hækkað þótt kostnaður hafi ekki aukist jafn mikið. Hærra olíuverð getur þannig, með áhrifum sínum á vísitöluna, hækkað verð þjónustu sem notar lítið eldsneyti.
Þetta á líka við um húsaleigu. Samkvæmt skýrslunni voru um tveir þriðju leigusamninga í leiguskrá HMS tengdir vísitölu neysluverðs um mitt ár 2026. Langflestir þessara vísitölubundnu samninga gerðu ráð fyrir mánaðarlegum breytingum.
Leiguverð hefur einnig áhrif á vísitöluna. Hagstofan notar leigugögn við mat á húsnæðislið vísitölu neysluverðs, bæði fyrir leigjendur og þá sem búa í eigin húsnæði. Hækkun vísitölunnar getur því hækkað vísitölutengda leigu samkvæmt samningsákvæðum og leiguhækkanir geta síðan haft áhrif á vísitöluna. Samkvæmt skýrslunni er óvíst hversu sterk þessi víxlverkun er.
Leigusalar, fyrirtæki og opinberir kaupendur ættu að spyrja: Þarf samningurinn að fylgja vísitölunni eða er það orðið að venju? Má halda verði föstu lengur eða endurskoða það í stað sjálfvirkrar hækkunar?
Dæmi eru um tímabundna frystingu leiguverðs á atvinnuhúsnæði. Slíkt frumkvæði sýnir að það er hægt að halda aftur af hækkunum, í samræmi við svigrúm og mismunandi rekstraraðstæður.
Þegar næsta hækkun virðist óhjákvæmileg
Þrálát verðbólga dregur úr trú fólks á stöðugt verðlag, sem getur leitt til þess að fyrirtæki og heimili taki ákvarðanir út frá þeirri forsendu einni að verð haldi áfram að hækka. Samkvæmt skýrslunni getur það gert Seðlabankanum erfiðara að ná verðbólgu niður og kallað á meira aðhald, með kostnaði fyrir fyrirtæki, heimili og hagkerfið í heild.
Skýrslan bendir einnig á að mikil sjálfvirkni í verðbreytingum opinberra útgjalda, til dæmis í innkaupasamningum, geti þrengt svigrúm stjórnvalda til að stýra eigin eftirspurn og draga úr verðbólguþrýstingi. Byrðin á ekki öll að lenda á stýrivöxtunum. Að því marki sem sjálfvirkar verðbreytingar gera verðbólgu þrálátari getur minni sjálfvirkni létt undir með peningastefnunni.
Minni hækkanir eru upphafið
Minni sjálfvirkni tryggir þó enga tiltekna vaxtalækkun. Samkvæmt skýrslunni er áhrifaríkasta leiðin til að draga úr vísitölutengingum lág og stöðug verðbólga og traust á að hún haldist þannig.
Markmiðið er ekki að banna allar tengingar. Þær geta auðveldað langtímasamninga og afnám þeirra getur birst í hærra upphafsverði, svo meta þarf hvert tilvik. Hvert fyrirtæki á áfram að taka sjálfstæðar verðákvarðanir.
Þörf er á almennri vitundarvakningu, meðal kaupenda jafnt sem seljenda, svo verðbreytingarákvæði séu skoðuð af vandvirkni en ekki einfaldlega afrituð úr eldri samningum.
Takmörkun hækkana nú og minni sjálfvirkni síðar eiga að styðja hvor aðra svo ná megi verðbólgu niður með sem minnstum kostnaði fyrir samfélagið. Fögnum frumkvæðinu, skoðum samningana og lítum ekki á næstu hækkun sem sjálfgefna.
Tengdar færslur
19. október 2026Vellíðan í vinnu er sameiginlegt verkefni
17. október 2026Landsréttur dæmir uppsögn hjá Sjúkratryggingum Íslands ólögmæta – BHM metur næstu skref
14. október 2026Hádegisfundur BHM og LÍS - Ungt fólk á bið: Námslán, húsnæði og leiðin til sjálfstæðis
7. október 2026Umsögn BHM um fjárlagafrumvarp 2027
30. september 2026Námskeið fyrir sjóðfélaga Starfsþróunarsjóðs Félags háskólakennara
29. september 2026Ekki hægt að semja um leikreglurnar í miðju áfalli
