Námskeið fyrir sjóðfélaga Starfsþróunarsjóðs Félags háskólakennara
30. september 2026
Sjóðfélögum Starfsþróunarsjóðs Félags háskólakennara stendur nú til boða að sækja valin námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands þeim að kostnaðarlausu. Samstarfið miðar að því að styðja við símenntun og starfsþróun félagsfólks með fjölbreyttu úrvali námskeiða sem nýtast í starfi og efla faglega hæfni.






