Hvernig á að setja inn umsókn ?
Hægt er senda fjórar aðskildar umsóknir. Inni á orlofsvefnum er smellt á “Sækja um” á forsíðu vefsins undir “Úthlutanir”, þar er umsókn fyllt út og vistuð. Ef fólk vill nýta alla 4 valmöguleikana þá er þetta ferli endurtekið þar til fjórar umsóknir eru inni. Gott er að yfirfara umsóknirnar sem eru sýnilegar neðst á síðunni þar sem umsókn var fyllt út.
Dagsetningar fyrir Sumarúthlutun 2026
2.mars opnast fyrir umsóknir
15.mars er lokadagur til að setja inn umsókn
17.mars - úthlutun, seinnipartinn
17 - 31.mars greiðslufrestur
Forgangsbókun 1.apríl kl. 10:00 - 8.apríl kl.23:59 (þeir sem sóttu um en fengu ekki úthlutað geta bókað það sem ekki gekk út)
9.apríl "fyrstur kemur" kl. 12:00 opnað fyrir almennar bókanir