Sameinumst undir regnboganum

Hinsegin dagar eru í fullum gangi og standa fram á sunnudag. Hápunktur hátíðarinnar er Gleðigangan í Reykjavík á morgun, laugardag kl. 14:00. Einnig stendur BHM fyrir, ásamt ASÍ, BSRB og KÍ fyrir opnum fundi í dag, 7. ágúst kl. 16:00 í Iðnó um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði, áskoranir, inngildingu og hinsegin vottun.

BHM styður heilshugar við réttindi og jafnrétti hinsegin fólks og hvetur starfsfólk, trúnaðarmenn og félagsfólk aðildarfélaga til að taka þátt í Gleðigöngunni.

Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00. Félagar í BHM munu ganga ásamt félögum í ASÍ, BSRB og Kennarasambandi Íslands undir dúndrandi undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins.

Gleðigangan er bæði hátíð og baráttuganga. Þar sameinast fólk til að fagna fjölbreytileikanum, sýna samstöðu og minna á mikilvægi þess að allir njóti sömu réttinda og virðingar, óháð kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu.

BHM með Hinsegin vottun

BHM hlaut Hinsegin vottun Samtakanna '78 árið 2025 og gildir hún til ársins 2027. Vottunin staðfestir þá skuldbindingu bandalagsins að stuðla að fjölbreytileika, jafnrétti og öruggu starfsumhverfi þar sem öll fá að njóta sín á eigin forsendum.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Sumaropnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt