Sumaropnun símaþjónustu þjónustuvers
1. júní 2026
Frá og með 2. júní til 4. ágúst verður símaþjónusta þjónustuvers BHM opin kl. 10:00–12:00 alla virka daga.
Þjónustuver BHM er áfram opið samkvæmt auglýstum opnunartíma og erindum sem berast í tölvupósti er svarað daglega.
Netfang þjónustuvers sjóða BHM er sjodir@bhm.is.
Í sumar er unnið að innleiðingu nýs umsóknarkerfis sem mun stuðla að enn skilvirkari afgreiðslu erinda og umsókna. Breyttur símaopnunartími í sumar er liður í að skapa svigrúm til innleiðingar nýrra tæknilausna og áframhaldandi þróunar þjónustunnar. Nú sem fyrr er markmiðið ávallt að tryggja framúrskarandi þjónustu við félagsfólk.
Opnunartími skrifstofu þjónustuvers
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00–16:00
- Föstudaga kl. 9:00–13:00
Símaopnun
- Mánudaga til föstudaga kl. 10:00-12:00
Gleðilegt sumar!






