Skyld­ur starfs­fólks sveit­ar­fé­laga

Starfsskyldur starfsfólks sveitarfélaga ráðast af lögum, kjarasamningum, samþykktum sveitarfélags og ráðningarsamningi. Lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins gilda ekki um starfsfólk sveitarfélaga, en sambærileg ákvæði eru í kjarasamningum.

Lýsingin hér byggist á 11. kafla kjarasamnings Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sálfræðingafélags Íslands og 9. kafla kjarasamnings Reykjavíkurborgar og Visku, sem báðir gilda 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Greinanúmer geta verið önnur í kjarasamningum annarra aðildarfélaga.

Stjórnsýslulög

Starfsfólk sem tekur ákvarðanir um rétt eða skyldu fólks fyrir hönd sveitarfélags fer eftir stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Ákvæði X. kafla laganna um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu gilda um alla sem starfa á vegum sveitarfélaga. Um sérstakt hæfi þeirra sem starfa við stjórnsýslu sveitarfélaga fer þó eftir sveitarstjórnarlögum.

Breytingar á störfum

  • Samband íslenskra sveitarfélaga: Starfsmanni er skylt að hlíta breytingum á störfum sínum og verksviði frá því hann tók við starfi. Umtalsverðar breytingar ber að tilkynna með sama fyrirvara og uppsögn (gr. 11.1.4.1).
  • Reykjavíkurborg: Starfsmanni er skylt að hlíta því að starfssvið hans sé aukið eða því breytt, enda sé það nauðsynlegt vegna skipulagsbreytinga eða af öðrum ástæðum. Honum er einnig skylt að taka við annarri sambærilegri stöðu, enda verði föst laun hans og starfsskilyrði ekki lakari (gr. 9.6).

Yfirvinna

Starfsmönnum er skylt að vinna yfirvinnu sem vinnuveitandi telur nauðsynlega, en þó ekki meira en sem nemur fimmtungi af lögmæltum vikulegum vinnutíma, nema um öryggisþjónustu sé að ræða (gr. 11.1.5.1 í samningi Sambandsins).

Þagnarskylda

Hver sá sem starfar á vegum sveitarfélags er bundinn þagnarskyldu um upplýsingar sem eru trúnaðarmerktar samkvæmt lögum eða öðrum reglum, eða þegar nauðsynlegt er að halda þeim leyndum til að vernda verulega opinbera hagsmuni eða einkahagsmuni (42. gr. stjórnsýslulaga). Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi. Hún nær ekki til upplýsinga um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi starfsmanna stjórnvalda.

Má ég vinna aukastarf?

Hjá Reykjavíkurborg ber starfsfólki að tilkynna fyrir fram um aukastörf eða atvinnurekstur. Vinnuveitandi ákveður innan tveggja vikna hvort starfsemin samrýmist starfinu og má skjóta þeirri ákvörðun til borgarstjóra (gr. 9.7). Kannaðu hvort kjarasamningur þíns félags hefur sambærilegt ákvæði. Óháð því gildir trúnaðarskylda gagnvart vinnuveitanda.

Áminning og uppsögn

  • Samband íslenskra sveitarfélaga: Vinnuveitandi skal gefa starfsmanni kost á að tjá sig um meintar ávirðingar áður en ákvörðun um áminningu er tekin. Starfsmaður á rétt á að tjá sig um tilefni áminningar í viðurvist trúnaðarmanns og skal fá tíma og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en gripið er til uppsagnar (gr. 11.1.6.2). Óheimilt er að segja starfsmanni upp án málefnalegra ástæðna (gr. 11.1.6.1).
  • Reykjavíkurborg: Áminning skal vera skrifleg og tilgreina tilefni sitt. Starfsmanni skal gefinn kostur á að tjá sig áður en ákvörðun er tekin, og hann má tjá sig í viðurvist trúnaðarmanns (gr. 9.8). Uppsögn skal vera skrifleg og byggð á málefnalegum ástæðum. Starfsmaður getur óskað eftir skriflegum rökstuðningi og skotið ákvörðuninni til æðra stjórnvalds (gr. 9.9).

Ef starfsmaður verður uppvís að grófu broti í starfi má víkja honum fyrirvaralaust úr starfi. Gæta þarf að andmælarétti hans áður en endanleg ákvörðun er tekin, og fulltrúa stéttarfélags skal gefinn kostur á að kynna sér málið. Nánar er fjallað um starfslok á síðunni Starfslok hjá sveitarfélögum.

Uppljóstrun

Starfsfólki sveitarfélaga er skylt samkvæmt lögum nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara að greina frá lögbrotum eða annarri ámælisverðri háttsemi innan vinnustaðarins. Sjá nánar á síðunni Tjáningarfrelsi og vernd uppljóstrara.

Ráðgjöf

Stéttarfélagið þitt veitir ráðgjöf um réttindi þín og skyldur. Leitaðu til þess sem fyrst ef þú færð boð á fund vegna meintra brota í starfi. Almennar upplýsingar eru á síðunni Skyldur starfsfólks.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt