Lagagrundvöllur
Lög nr. 70/1996 gilda ekki um starfsfólk sveitarfélaga. Samkvæmt 57. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 fer um réttindi og skyldur starfsfólks sveitarfélaga eftir kjarasamningum og ráðningarsamningum. Í lögunum er þó sérstaklega kveðið á um þagnarskyldu starfsfólks, sem helst eftir starfslok.
Ákvörðun sveitarfélags um uppsögn er stjórnvaldsákvörðun og um málsmeðferðina gilda stjórnsýslulög nr. 37/1993. Til hliðsjónar má benda á álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 12273/2023.
Málefnalegar ástæður
Samkvæmt gr. 11.1.6.1 í kjarasamningum aðildarfélaga BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga er óheimilt að segja starfsmanni upp án málefnalegra ástæðna. Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við mánaðamót. Kjarasamningar eru birtir á vef Sambandsins.
Áminning
Ef starfsmaður hefur sýnt óstundvísi eða aðra vanrækslu, óhlýðni við löglegt boð eða bann yfirmanns, vankunnáttu eða óvandvirkni, ekki náð fullnægjandi árangri í starfi, verið ölvaður að störfum eða framkoma hans þykir að öðru leyti ósæmileg, óhæfileg eða ósamrýmanleg starfinu, skal vinnuveitandi veita honum skriflega áminningu (gr. 11.1.6.2).
- Starfsmanni skal gefinn kostur á að tjá sig um ávirðingar áður en áminning er veitt, og hann á rétt á að tjá sig í viðurvist trúnaðarmanns.
- Í áminningu skal tilgreina tilefni hennar og þá afleiðingu að bæti starfsmaður ekki ráð sitt verði honum sagt upp.
- Starfsmanni skal gefinn tími og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en til uppsagnar kemur.
Sjá einnig leiðbeiningar Sambandsins um áminningar.
Uppsögn vegna hagræðingar
Ekki er skylt að veita áminningu og gefa starfsmanni kost á að tjá sig áður en uppsögn tekur gildi ef tilefni hennar er ekki rakið til starfsmannsins sjálfs, svo sem vegna hagræðingar í rekstri (gr. 11.1.6.2).
Rökstuðningur
Starfsmaður getur krafist skriflegs rökstuðnings fyrir uppsögn innan 14 daga, sbr. 21. og 22. gr. stjórnsýslulaga.
Stjórnsýslulög gilda ekki um einkaréttarlega aðila sem taka að sér verkefni fyrir sveitarfélag. Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 19/2008 hafði þó verið samið um að kjarasamningur opinberra starfsmanna gilti um starfið. Fyrirtækinu var því óheimilt að segja starfsmanninum upp án málefnalegra ástæðna og uppsögnin var talin ólögmæt.
Fyrirvaralaus brottvikning
Samkvæmt gr. 11.1.6.1 er heimilt að víkja starfsmanni fyrirvaralaust úr starfi ef:
- hann hefur verið sviptur rétti til að gegna starfinu með fullnaðardómi,
- hann hefur játað refsiverða háttsemi sem ætla má að leiði til réttindasviptingar samkvæmt 68. gr. almennra hegningarlaga,
- hann verður uppvís að grófu broti í starfi og viðvera hans veldur áframhaldandi skaða. Fulltrúa stéttarfélags skal gefinn kostur á að kynna sér málið áður en ákvörðun er tekin.
Gæta skal andmælaréttar áður en endanleg ákvörðun er tekin. Á meðan málið er til meðferðar má afþakka vinnuframlag starfsmanns en hann heldur launum.
Uppsagnarfrestur
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er þrír mánuðir, en einn mánuður á þriggja mánaða reynslutíma (gr. 11.1.3.3). Eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sama sveitarfélagi lengist uppsagnarfrestur af hálfu vinnuveitanda:
- 4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára,
- 5 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 60 ára,
- 6 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 63 ára.
Starfsmaður getur sjálfur sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara.
Biðlaun
Samkvæmt gr. 11.1.1 eiga starfsmenn sem ráðnir voru fyrir 1. mars 1997 rétt á biðlaunum ef starf er lagt niður: í sex mánuði ef starfstími er skemmri en 15 ár, en ella í tólf mánuði. Biðlaun falla niður ef starfsmaður tekur við starfi hjá sveitarfélagi sem fylgja jöfn eða hærri laun.
Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg gerir eigin kjarasamninga við aðildarfélög BHM. Í þeim eru sambærileg ákvæði um uppsagnarfrest, en reynslutími getur í undantekningartilvikum verið allt að fimm mánuðir. Samningarnir eru birtir á vef Reykjavíkurborgar.
Hvert get ég leitað?
Leitaðu til aðildarfélagsins þíns ef þú telur uppsögn ólögmæta. Sjá einnig Uppsagnarvernd.