Ferðir til og frá vinnu
Ferðir starfsfólks til og frá vinnu eru farnar í eigin tíma starfsmanns og á hans kostnað, nema um annað hafi verið samið í kjarasamningi eða ráðningarsamningi.
Hvenær telst ferðatími vinnutími?
Sá tími sem starfsmaður ver í ferðir utan hefðbundins vinnutíma, að kröfu vinnuveitanda, til annars áfangastaðar en fastrar eða hefðbundinnar starfsstöðvar í því skyni að sinna störfum sínum þar, telst vinnutími í skilningi 1. tölul. 52. gr. laga nr. 46/1980. Ákvæðið byggist á vinnutímatilskipun 2003/88/EB.
Ekki er nauðsynlegt að meta í hve miklum mæli vinna fer fram meðan á ferðunum stendur.
Í dómi Hæstaréttar 15. maí 2024 í máli nr. 52/2023 var þetta staðfest. Málið varðaði ferðir flugvirkja á vegum Samgöngustofu til útlanda. Áður hafði EFTA-dómstóllinn látið í té ráðgefandi álit í máli E-11/20.
Ber að greiða fyrir ferðatímann?
Dómur Hæstaréttar fjallar um hvort ferðatími teljist vinnutími í skilningi vinnuverndarlöggjafar. Hann fjallar ekki um greiðsluskyldu.
- Opinberir launagreiðendur: Þeir hafa lýst því yfir að tími sem starfsfólk ver í ferðir að kröfu vinnuveitanda, til annars áfangastaðar en fastrar eða hefðbundinnar starfsstöðvar, skuli greiddur eins og annar vinnutími. Sjá til dæmis bókun 5 í kjarasamningi ríkisins og Þroskaþjálfafélags Íslands frá 19. desember 2024.
- Almennur vinnumarkaður: Greiðsla fer eftir ákvæðum kjarasamnings og ráðningarsamnings.
Félagsfólk er hvatt til að hafa samband við sitt aðildarfélag um rétt til launa vegna vinnutengdra ferða, jafnt innanlands sem utan, þar á meðal rétt til yfirvinnulauna og frítökuréttar.
Vegna ferða erlendis geta einnig komið til greiðslur vegna kostnaðar og óhagræðis.
Hvíld
Ferðatími sem telst vinnutími hefur áhrif á rétt til daglegrar hvíldar. Vinnutíma skal haga þannig að starfsmaður fái að minnsta kosti 11 klukkustunda samfellda hvíld á hverju 24 klukkustunda tímabili. Nánar er fjallað um hvíld á síðunni dagleg og vikuleg hvíld og um bakvaktir og ferðatíma á síðunni bakvaktir, útköll og ferðatími.