Dag­leg og viku­leg hvíld

Reglur um daglegan og vikulegan hvíldartíma og hámarksvinnutíma eru í IX. kafla laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og í kjarasamningum aðildarfélaga BHM. Þær eiga að tryggja starfsfólki raunhæfa hvíld og vernda heilsu þess og öryggi.

Á hverju byggja reglurnar?

Lágmarksreglur um vinnutíma og hvíld eru í IX. kafla laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þær byggja á tilskipun 2003/88/EB um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma, sem er hluti af EES-samningnum og var sett til að vernda öryggi og heilsu starfsfólks.

Í kjarasamningum aðildarfélaga BHM eru jafnframt ítarlegri reglur, meðal annars um frítökurétt þegar hvíld er skert. Mikilvægt er að greina á milli lágmarksréttinda samkvæmt lögum og réttinda samkvæmt kjarasamningum, því þau síðarnefndu geta verið ólík eftir samningum.

Um heilsufarsleg áhrif vinnutíma er fjallað á síðunni vinnutími, hvíld og heilsa.

Hvað telst vinnutími og hvað hvíldartími?

Samkvæmt 52. gr. laganna er vinnutími sá tími sem starfsmaður er við störf, er til taks fyrir atvinnurekanda og innir af hendi störf sín eða skyldur. Hvíldartími er sá tími sem ekki telst til vinnutíma. Við skýringu hugtaksins ber að líta til dómaframkvæmdar EFTA-dómstólsins og Evrópudómstólsins.

Ferðir utan hefðbundinnar starfsstöðvar

Samkvæmt dómi EFTA-dómstólsins í máli E-19/16 getur ferðatími til og frá starfsstöð, sem ekki er hin fasta eða hefðbundna starfsstöð starfsmanns, við ákveðnar aðstæður talist vinnutími. Í máli E-11/20 frá 15. júlí 2021 fjallaði dómstóllinn um ferðir starfsmanns til annars áfangastaðar en hefðbundinnar starfsstöðvar, þar á meðal ferðir milli landa.

Í dómi Landsréttar 15. september 2023 í máli nr. 197/2022 var fallist á að tími sem starfsmaður varði í ferðir til útlanda á vegum vinnuveitanda, utan hefðbundins vinnutíma, teldist vinnutími í skilningi laganna. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar, sem kvað upp dóm 15. maí 2024 í máli nr. 52/2023.

Daglegur hvíldartími

Vinnutíma skal haga þannig að á hverju 24 klukkustunda tímabili, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsfólk að minnsta kosti 11 klukkustunda samfellda hvíld. Ef því verður við komið skal hvíldin ná til tímabilsins frá kl. 23:00 til 06:00.

Upphaf 24 klukkustunda tímabilsins miðast við upphaf vinnudags starfsmanns:

  • Fastur vinnutími: ef vinnudagur hefst að jafnaði kl. 8:00 miðast tímabilið við það.
  • Vaktavinna: miðað er við upphaf vaktar samkvæmt vaktskrá. Fyrir aukavakt á frídegi er að jafnaði miðað við síðasta skráða vinnudag.

Allur vinnutími hjá sama atvinnurekanda er lagður saman, jafnvel þótt starfsmaður gegni fleiri en einu starfi eða hafi fleiri en einn ráðningarsamning.

Frávik samkvæmt lögum

Með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins er heimilt að stytta samfellda lágmarkshvíld í allt að átta klukkustundir á skipulögðum vaktaskiptum, til dæmis þegar starfsmaður fer af morgunvakt á næturvakt samkvæmt vaktskrá. Samkvæmt kjarasamningum á heimildin ekki við þegar starfsmaður lýkur yfirvinnu og fer beint á reglubundna vakt, eða öfugt, og vaktaskipulag á að vera þannig að sem sjaldnast reyni á hana.

Einnig má víkja frá reglunni við sérstakar aðstæður, til dæmis þegar almannaheill krefst, til að halda uppi nauðsynlegri þjónustu eða vegna ófyrirsjáanlegra atvika. Sé dagleg hvíld stytt samkvæmt þessum heimildum á starfsmaður rétt á samsvarandi hvíld síðar.

Í 53. gr. b laganna er kveðið á um sérstök frávik vegna þjónustu sem veitt er á grundvelli 11. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Skýringar á ákvæðinu eru í frumvarpi til breytinga á lögunum.

Frítökuréttur og aðrar reglur samkvæmt kjarasamningum

Í kjarasamningum aðildarfélaga BHM, einkum við ríki og sveitarfélög, eru ítarlegri ákvæði sem fela meðal annars í sér eftirfarandi. Nánari útfærsla getur verið mismunandi eftir samningum.

  • Óheimilt er að skipuleggja vinnu þannig að vinnutími á 24 klukkustunda tímabili fari umfram 13 klukkustundir.
  • Sé starfsmaður beðinn um að mæta til vinnu áður en 11 klukkustunda hvíld er náð myndast frítökuréttur, að jafnaði ein og hálf klukkustund í dagvinnu fyrir hverja klukkustund sem hvíldin skerðist.
  • Við sérstakar aðstæður, svo sem vegna almannaheilla eða til að halda uppi nauðsynlegri heilbrigðis- eða öryggisþjónustu, er heimilt að lengja vinnulotu í allt að 16 klukkustundir. Í beinu framhaldi á starfsmaður þá rétt á 11 klukkustunda hvíld án skerðingar á launum.
  • Frítökuréttur skal skráður á launaseðli eða í viðverukerfi. Frí er veitt í samráði við starfsmann og ekki í styttri lotum en fjórum klukkustundum.
  • Starfsmaður getur óskað eftir að fá hluta frítökuréttar greiddan út, að jafnaði hálfa klukkustund í dagvinnu fyrir hverja eina og hálfa klukkustund. Við starfslok er ótekinn frítökuréttur gerður upp.

Aðildarfélögin veita nánari upplýsingar um þær reglur sem gilda samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Vikuleg hvíld

Á hverju sjö daga tímabili á starfsmaður rétt á að minnsta kosti einum vikulegum frídegi sem tengist beint daglegum hvíldartíma. Í reynd felur það í sér 35 klukkustunda samfellda hvíld (24 + 11) einu sinni í viku. Að svo miklu leyti sem því verður við komið skal vikulegur frídagur vera á sunnudegi. Við sérstakar aðstæður má fresta vikulegum frídegi, en þá skulu koma í staðinn samsvarandi frídagar síðar.

Hámarksvinnutími

Vinnutími, að yfirvinnu meðtalinni, skal að meðaltali ekki fara umfram 48 klukkustundir á viku. Samkvæmt lögunum miðast meðaltalið við fjögurra mánaða viðmiðunartímabil, en með kjarasamningi er heimilt að lengja það í allt að sex mánuði.

Næturvinna

Næturvinnustarfsmaður er sá sem venjulega vinnur að minnsta kosti þrjár klukkustundir af daglegum vinnutíma sínum á tímabilinu frá kl. 23:00 til 06:00, eða tiltekinn hluta af árlegum vinnutíma sínum á því tímabili.

  • Vinnutími næturvinnustarfsmanna skal að jafnaði ekki vera lengri en átta klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili.
  • Næturvinnustarfsmenn sem gegna sérstaklega áhættusömum störfum eða störfum sem fela í sér mikið líkamlegt eða andlegt álag skulu ekki vinna lengur en átta klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili.
  • Næturvinnustarfsmenn eiga rétt á heilbrigðisskoðun sér að kostnaðarlausu áður en þeir hefja næturvinnu og síðan með reglulegu millibili.
  • Næturvinnustarfsmaður sem á við heilsufarsvandamál að stríða sem sannanlega verða rakin til næturvinnu skal, þegar kostur er, færður í dagvinnu sem hentar honum.

Sjá nánar 52., 56. og 57. gr. laganna og umfjöllun um vaktavinnu.

Hverjir falla utan reglnanna?

Ákvæði um daglega og vikulega lágmarkshvíld gilda ekki að öllu leyti um stjórnendur sem ráða vinnutíma sínum sjálfir og um tiltekna starfsemi hins opinbera, svo sem nauðsynlega öryggis- og löggæslustarfsemi og almannavarnir. Undantekningar ber að skýra þröngt.

Skráning vinnutíma

Atvinnurekanda er skylt að skrá vinnutíma starfsfólks og starfsfólk á rétt á að nálgast upplýsingar um eigin vinnutíma tólf mánuði aftur í tímann, sjá skráning vinnutíma.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt