Þrjú ólík hugtök
Í umræðu um ónýtt orlof er mikilvægt að greina á milli þriggja ólíkra hugtaka:
- Flutningur eða frestun orlofs: Orlof sem ekki er tekið á orlofsárinu er tekið síðar.
- Niðurfall réttar til orlofstöku: Réttur til að taka orlofið fellur niður. Í kjarasamningum er stundum sagt að orlof „fyrnist“ í þessari merkingu.
- Fyrning kröfu: Krafa um greiðslu orlofslauna nýtur ekki lengur lögverndar af því að hún var ekki gerð innan lögboðins frests.
Reglurnar um hvert þessara atriða eru ólíkar. Niðurfall réttar til orlofstöku þarf ekki að leiða til þess að krafa um greiðslu falli niður og öfugt.
Hver er meginreglan?
Samkvæmt lögum nr. 30/1987 um orlof skal orlofi alltaf lokið fyrir lok orlofsársins (4. gr.). Óheimilt er að framselja orlofslaun eða flytja þau milli orlofsára (13. gr.). Reglunum er ætlað að tryggja að starfsfólk fái raunverulega hvíld á hverju ári.
Ábyrgðin á því að orlof sé tekið hvílir ekki eingöngu á starfsfólki. Atvinnurekandi ákveður hvenær orlof er tekið (5. gr.). Honum ber því að skipuleggja starfsemina þannig að starfsfólk geti tekið áunnið orlof innan orlofsársins.
Hvenær má flytja orlof milli ára?
Ríkið og Reykjavíkurborg
Samkvæmt kjarasamningum er flutningur orlofs milli ára óheimill nema í eftirfarandi tilvikum:
- Starfsmaður tók ekki orlof eða hluta þess vegna skriflegrar beiðni yfirmanns.
- Starfsmaður gat ekki tekið orlof vegna fæðingar- eða foreldraorlofs.
- Starfsmaður veiktist í orlofi.
Uppsafnað orlof getur þó aldrei orðið meira en 60 dagar. Samkvæmt samningstextanum fyrnast uppsafnaðir dagar sem ekki eru nýttir. Á Mannauðstorgi ríkisins er sú framkvæmd kynnt að ótekið orlof falli niður 30. apríl ár hvert og að flutt orlof falli niður að loknu því orlofsári sem það var flutt til. Upplýsingar um stöðu áunnins og ótekins orlofs skulu samkvæmt kjarasamningunum vera starfsfólki aðgengilegar í tímaskráningarkerfi.
Önnur sveitarfélög
Samkvæmt kjarasamningum við Samband íslenskra sveitarfélaga skal orlofi lokið fyrir lok orlofsársins. Samningarnir mæla fyrir um ferli þar sem aðilar ræða orlofstöku og gera skriflegt samkomulag um lok hennar. Náist samkomulag ekki skal atvinnurekandi tilkynna starfsmanni hvenær orlof verður tekið. Starfsmaður sem getur ekki tekið orlof vegna veikinda eða fæðingarorlofs getur krafist þess að taka það á öðrum tíma. Í samningunum er ekki kveðið á um 60 daga hámark.
Almennur vinnumarkaður
Kjarasamningur SA og aðildarfélaga BHM hefur ekki að geyma sérstakt ákvæði um flutning orlofs. Þar gilda reglur orlofslaga.
Samkomulag um flutning
Lögin heimila ekki sérstaklega samkomulag um að flytja orlof milli ára. Hafi starfsmaður samið um flutning eða hafi atvinnurekandi látið viðgangast að orlof safnist upp er réttarstaðan óviss. Ráðlegt er að ganga frá öllu slíku skriflega, þar á meðal hvenær orlofið verður tekið.
Getur ónýtt orlof fallið niður?
Það fer eftir því hvort atvinnurekandi gerði starfsmanni í raun kleift að taka orlofið.
Dómaframkvæmd Evrópudómstólsins
Samkvæmt 7. gr. tilskipunar 2003/88/EB á launafólk rétt á minnst fjögurra vikna árlegu orlofi á launum. Evrópudómstóllinn hefur túlkað ákvæðið svo:
- Ekkert sjálfkrafa niðurfall. Starfsmaður glatar ekki sjálfkrafa áunnum rétti til orlofs við lok orlofsárs eða flutningstíma þótt hann hafi ekki sótt um orlof (C-684/16, Max-Planck-Gesellschaft, og C-619/16, Kreuziger, dómar 6. nóvember 2018).
- Skyldur atvinnurekanda. Rétturinn getur aðeins fallið niður ef atvinnurekandi hefur gert starfsmanni kleift að taka orlofið. Í því felst að atvinnurekandi upplýsi starfsmann nákvæmlega og í tæka tíð um fjölda ótekinna orlofsdaga, hvetji hann, formlega ef þörf krefur, til að taka orlofið og upplýsi hann um að orlofið falli niður ef það verður ekki tekið.
- Sönnunarbyrði. Atvinnurekandi ber sönnunarbyrðina fyrir því að hann hafi uppfyllt þessar skyldur. Hafi starfsmaður engu að síður vísvitandi látið hjá líða að taka orlofið getur rétturinn fallið niður.
- Uppsöfnun. Hafi atvinnurekandi ekki gert starfsmanni kleift að taka launað orlof safnast rétturinn upp og skal gerður upp við starfslok (C-214/16, King).
Hvaða þýðingu hefur þetta á Íslandi?
Tilskipun 2003/88/EB er hluti af EES-samningnum. Réttur til orlofs samkvæmt 31. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sem Evrópudómstóllinn hefur einnig byggt á, er hins vegar ekki hluti af EES-samningnum. Dómar Evrópudómstólsins hafa því ekki bein réttaráhrif hér á landi, sérstaklega ekki í ágreiningi milli starfsmanns og einkafyrirtækis.
Dómaframkvæmdin hefur þó þýðingu á Íslandi með tvennum hætti:
- Lögskýring. Íslensk lög og kjarasamninga ber að skýra til samræmis við EES-reglur eftir því sem unnt er (3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið). Því má færa rök fyrir því að ákvæði kjarasamninga um að ónýtt orlof „fyrnist“ eða falli niður eigi ekki við nema atvinnurekandi hafi gert starfsmanni kleift að taka orlofið.
- Skaðabótaábyrgð ríkisins. Verði ekki unnt að ná fram réttindum samkvæmt tilskipuninni með lögskýringu getur komið til álita að ríkið beri skaðabótaábyrgð vegna ófullnægjandi innleiðingar.
Íslenskir dómstólar hafa ekki tekið afstöðu til þessara álitaefna, svo vitað sé. Óvíst er hvort það eitt að upplýsingar um stöðu orlofs séu aðgengilegar í tímaskráningarkerfi fullnægi þeim kröfum sem Evrópudómstóllinn hefur gert um upplýsingar og hvatningu.
Lágmarksorlof og viðbótarorlof
EES-reglurnar tryggja fjögurra vikna lágmarksorlof. Evrópudómstóllinn hefur talið að aðildarríkjum sé heimilt að setja önnur skilyrði um orlof umfram lágmarkið (C-337/10, Neidel). Réttarvernd viðbótarorlofs samkvæmt kjarasamningi kann því að vera önnur en réttarvernd lágmarksorlofs.
Hvað gerist í langvarandi veikindum?
Starfsmaður sem getur ekki tekið orlof vegna veikinda glatar ekki rétti sínum af þeim sökum (sameinuð mál C-350/06 og C-520/06, Schultz-Hoff o.fl.). Uppsöfnun réttar hjá starfsfólki í langvarandi veikindum má þó takmarka með hæfilegum flutningstíma. Evrópudómstóllinn hefur talið 15 mánaða flutningstíma heimilan (C-214/10, KHS). Hafi starfsmaður starfað hluta orlofsársins áður en hann veiktist getur réttur vegna þess árs aðeins fallið niður ef atvinnurekandi gerði honum kleift að taka orlofið áður en veikindin hófust (sameinuð mál C-518/20 og C-727/20, Fraport).
Sjá nánar Veikindi og orlof.
Hvenær fyrnist krafa um orlofslaun?
Samkvæmt 14. gr. orlofslaga fyrnast kröfur á hendur atvinnurekanda samkvæmt lögunum eftir sömu reglum og kröfur um vinnulaun. Um fyrningu gilda nú lög nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda. Almennur fyrningarfrestur er fjögur ár (3. gr.) og reiknast frá þeim degi sem kröfuhafi gat fyrst krafist efnda (2. gr.). Krafa um uppgjör orlofs við starfslok verður gjaldkræf við lok ráðningartímans (8. gr. orlofslaga).
Evrópudómstóllinn hefur talið að fyrningarfrestur kröfu vegna orlofs geti ekki byrjað að líða fyrr en atvinnurekandi hefur gert starfsmanni kleift að nýta réttinn (C-120/21, LB, dómur 22. september 2022). Óvíst er hvort íslenskir dómstólar myndu fallast á það. Gerðu því kröfu tímanlega og skriflega.
Hvað get ég gert?
- Fylgstu með stöðu orlofs þíns. Áunnin orlofslaun eiga að koma fram á launaseðli (7. gr. orlofslaga) og hjá hinu opinbera á staða orlofs að vera aðgengileg í tímaskráningarkerfi.
- Óskaðu skriflega eftir orlofi og geymdu gögn um samskipti þín við atvinnurekanda.
- Biðji atvinnurekandi þig að fresta orlofi skaltu fá beiðnina skriflega. Hjá ríkinu og Reykjavíkurborg er skrifleg beiðni yfirmanns skilyrði fyrir flutningi orlofs.
- Sé þér tilkynnt að orlof hafi fallið niður skaltu óska skriflegra skýringa á því hvort og hvernig atvinnurekandi upplýsti þig um stöðu orlofsins og hvatti þig til að taka það.
- Gerðu kröfu skriflega og innan fyrningarfrests.
- Leitaðu til aðildarfélags þíns ef ágreiningur kemur upp um niðurfall eða fyrningu orlofs.