Hvað á að koma fram á launaseðli?
Í kjarasamningum er kveðið á um rétt starfsfólks til launaseðils. Samkvæmt kjarasamningum við ríkið á starfsmaður rétt á launaseðli merktum nafni sínu við greiðslu launa (gr. 16.1.1).
Launaseðill á að gera starfsmanni kleift að sannreyna launin. Þar koma að jafnaði fram upplýsingar um tímabil, launaflokk og þrep eða umsamin mánaðarlaun, yfirvinnu og aðrar greiðslur, orlof og frádrátt, til dæmis skatta, lífeyrisiðgjöld og stéttarfélagsgjöld. Um orlof á launaseðli er fjallað á síðunni Orlofslaun og orlofsfé.
Hvenær á að greiða laun?
Gjalddagi launa ræðst af kjarasamningi og ráðningarsamningi. Ef laun eru ekki greidd á gjalddaga getur starfsmaður krafist dráttarvaxta samkvæmt lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
Frádráttur og ofgreidd laun
- Ef dregið er af launum án skýringar skaltu óska eftir skýringum frá launadeild og leita til aðildarfélagsins ef þær eru ófullnægjandi.
- Hafi laun verið ofgreidd getur atvinnurekandi við tilteknar aðstæður krafist endurgreiðslu. Réttarstaðan ræðst meðal annars af því hvort starfsmaður var í góðri trú. Leitaðu ráða hjá aðildarfélaginu áður en þú samþykkir endurgreiðslu eða frádrátt.
Hvað geri ég ef laun eru vangoldin?
- Farðu yfir launaseðil og berðu hann saman við ráðningarsamning, kjarasamning og eigin skrá yfir unna tíma.
- Gerðu skriflega athugasemd við atvinnurekanda eins fljótt og unnt er. Dráttur á athugasemdum getur haft áhrif á rétt til að krefjast leiðréttingar (tómlæti).
- Leitaðu til aðildarfélagsins, sem getur gert kröfu fyrir þína hönd.
Fyrning launakrafna
Samkvæmt lögum nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda er almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda fjögur ár. Fresturinn reiknast frá þeim degi þegar kröfuhafi gat fyrst átt rétt til efnda, það er að jafnaði frá gjalddaga launanna.
Sönnun um unna vinnu
Atvinnurekanda er skylt að skrá vinnutíma starfsfólks, sjá Skráning vinnutíma. Í dómi Landsréttar í máli nr. 276/2026 var talið að atvinnurekandi bæri hallann af sönnunarskorti um unna vinnu þar sem tímaskráningu var ábótavant, sjá frétt BHM um dóminn.
Gjaldþrot atvinnurekanda
Ef atvinnurekandi verður gjaldþrota getur Ábyrgðasjóður launa ábyrgst greiðslu launakrafna innan tiltekinna marka. Sjá Gjaldþrot.