Hvað ábyrgist Ábyrgðasjóður launa?
Samkvæmt lögum nr. 88/2003 um Ábyrgðasjóð launa ábyrgist sjóðurinn greiðslu krafna um vangoldin laun, bætur vegna slita á ráðningarsamningi, orlof, bætur vegna vinnuslysa og lífeyrisiðgjöld þegar bú vinnuveitanda er tekið til gjaldþrotaskipta. Lögin byggjast á tilskipun 2008/94/EB.
Ábyrgðin tekur meðal annars til:
- vinnulauna fyrir síðustu þrjá starfsmánuði í þjónustu vinnuveitanda,
- bóta vegna launamissis í allt að þrjá mánuði vegna slita á ráðningarsamningi, að því tilskildu að launamaður sýni fram á að hann hafi verið á vinnumarkaði og leitað virkt að vinnu á uppsagnarfresti, til dæmis með skráningu hjá Vinnumálastofnun,
- orlofslauna,
- bóta vegna vinnuslysa, enda taki tryggingar vinnuveitanda ekki til þeirra,
- vangoldinna lífeyrisiðgjalda.
Ábyrgðin tekur til krafna sem fallið hafa í gjalddaga, eða réttur hefur unnist til, á síðustu 18 mánuðum fyrir úrskurðardag um gjaldþrotaskipti (4. gr.).
Hámark ábyrgðar
Ábyrgð á kröfum um laun og bætur vegna slita á ráðningarsamningi er háð hámarki fyrir hvern mánuð. Samkvæmt reglugerð nr. 1451/2024 er hámarkið 970.000 kr. á mánuði fyrir kröfur sem gjaldfalla frá og með 1. janúar 2025. Sérstakt hámark gildir um kröfur vegna orlofslauna. Fjárhæðirnar eru endurskoðaðar árlega með reglugerð.
Greiðslur vinnuveitanda upp í kröfur fyrir gjaldþrot koma til frádráttar. Atvinnuleysisbætur og atvinnutekjur á uppsagnarfresti koma til frádráttar bótum vegna launamissis. Sjóðurinn reiknar staðgreiðslu af greiðslum og skilar henni til innheimtumanns.
Hvernig og hvenær á að gera kröfu?
- Lýstu kröfu í þrotabúið innan þess kröfulýsingarfrests sem auglýstur er í Lögbirtingablaðinu.
- Skiptastjóri tekur afstöðu til kröfunnar. Ábyrgð sjóðsins er háð því að launakrafa hafi verið viðurkennd sem forgangskrafa samkvæmt lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.
- Gerðu kröfu á hendur Ábyrgðasjóði launa. Krafan þarf að berast sjóðnum innan sex mánaða frá þeirri birtingu innköllunar í Lögbirtingablaði sem ræður lokum kröfulýsingarfrests. Sjóðnum er heimilt að taka til greina kröfu sem berst innan tólf mánaða ef sýnt er að ekki hafi verið hægt að gera hana fyrr.
Vinnumálastofnun annast framkvæmd laganna. Afgreiðsla getur tekið nokkra mánuði, og því er mikilvægt að leita strax annarrar vinnu og skrá sig hjá Vinnumálastofnun.
Aðildarfélög BHM aðstoða félagsfólk við að lýsa kröfum í þrotabú og fylgja málum eftir gagnvart sjóðnum.
Hverjir njóta ekki ábyrgðar?
Ábyrgð sjóðsins tekur ekki til krafna þeirra sem sátu í stjórn hins gjaldþrota fyrirtækis eða voru framkvæmdastjórar þess, né þeirra sem áttu, einir eða ásamt nákomnum, verulegan hlut í fyrirtækinu og höfðu umtalsverð áhrif á rekstur þess. Heimilt er að hafna kröfum maka og annarra nákominna þessara aðila ef kröfurnar teljast óeðlilegar með hliðsjón af tengslunum.
Sjálfstætt starfandi verktakar njóta ekki ábyrgðar sjóðsins. Mikilvægt er þó að meta hvort samningssamband hafi í raun verið ráðningarsamband. Sjá nánar um gjaldþrot og stöðu verktaka.
Orlofslaun án gjaldþrotaskipta
Sjóðurinn ábyrgist einnig greiðslu orlofslauna samkvæmt orlofslögum þegar vinnuveitandi hefur ekki greitt þau, án þess að bú hans hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta (7. gr.). Ábyrgðin nær til orlofs sem áunnist hefur á síðustu 18 mánuðum.
Hvað telst til launa?
Landsréttur taldi í dómi í máli nr. 653/2023 að bifreiðastyrkur, sem tengdist ekki afnotum af bifreið, væri hluti fastra launa samkvæmt kjarasamningi og nyti því ábyrgðar sjóðsins.
Tengt efni
- Aðilaskipti og útvistun – um sérreglur þegar gjaldþrota fyrirtæki er selt
- Hópuppsagnir