Hvers vegna skiptir vinnutími máli fyrir heilsu?
Reglur um vinnutíma og hvíld eru í IX. kafla laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þær byggja á tilskipun 2003/88/EB um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma, sem sett var til að vernda öryggi og heilsu starfsfólks. Vinnutími og skipulag hans eru því hluti af áhættumati atvinnurekanda, sjá áhættumat og forvarnir.
Meginreglur í stuttu máli
- Starfsfólk á rétt á að minnsta kosti 11 klukkustunda samfelldri hvíld á hverju 24 klukkustunda tímabili.
- Á hverju sjö daga tímabili á starfsfólk rétt á að minnsta kosti einum vikulegum frídegi í beinu framhaldi af daglegri hvíld.
- Vinnutími, að yfirvinnu meðtalinni, má að meðaltali ekki fara umfram 48 klukkustundir á viku.
Frá þessum reglum má víkja við tilteknar aðstæður, en þá á starfsfólk almennt rétt á samsvarandi hvíld síðar. Í kjarasamningum aðildarfélaga BHM eru jafnframt ítarlegri reglur, meðal annars um frítökurétt þegar hvíld er skert. Ítarleg umfjöllun um þessar reglur er á síðunni dagleg og vikuleg hvíld.
Vaktavinna og næturvinna
Næturvinna og óreglulegur vinnutími geta haft áhrif á svefn, heilsu og öryggi. Næturvinnustarfsfólk á rétt á heilbrigðisskoðun sér að kostnaðarlausu áður en það hefur næturvinnu og síðan með reglulegu millibili. Ef næturvinnustarfsmaður á við heilsufarsvandamál að stríða sem rakin verða til næturvinnu skal hann, þegar kostur er, færður í dagvinnu sem hentar honum.
Vaktaskipulag þarf að taka mið af nægilegri hvíld milli vakta. Sjá nánar um vaktavinnu.
Yfirvinna og stöðug tenging við vinnu
Viðvarandi yfirvinna og stöðug tenging við vinnu utan vinnutíma, til dæmis í gegnum tölvupóst og síma, getur dregið úr raunverulegri hvíld. Sjá nánar um réttinn til að aftengjast og vinnuvernd í fjarvinnu.
Hvað getur starfsfólk gert?
- Kynntu þér skráningu vinnutíma. Atvinnurekanda er skylt að skrá vinnutíma starfsfólks og starfsfólk á rétt á að nálgast upplýsingar um eigin vinnutíma tólf mánuði aftur í tímann, sjá skráning vinnutíma.
- Ræddu við yfirmann ef hvíld er ítrekað skert eða vinnutími óhóflega langur.
- Leitaðu til trúnaðarmanns eða stéttarfélags um frítökurétt og önnur kjarasamningsbundin réttindi.
- Bregðist atvinnurekandi ekki við er hægt að senda Vinnueftirlitinu ábendingu, sjá hvað starfsfólk getur gert ef vinnuumhverfi er ábótavant.