Allir eiga rétt á jafnri meðferð á vinnumarkaði. Rétturinn nær til ráðningar, launa og annarra kjara, starfsframa, endurmenntunar, vinnuaðstæðna og uppsagnar. Reglurnar gilda hjá ríki, sveitarfélögum og á almennum vinnumarkaði.
Hvaða reglur gilda?
Samkvæmt 65. gr. stjórnarskrárinnar skulu allir vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna. Jafnræðisreglan hefur sérstaka þýðingu fyrir starfsfólk ríkis og sveitarfélaga.
Á vinnumarkaði eru reglurnar nánar útfærðar í tvennum lögum:
- Lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, sem banna mismunun vegna kyns.
- Lögum nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, sem banna mismunun vegna annarra ástæðna sem taldar eru upp hér að neðan.
Um stjórnsýslu, eftirlit og kærur samkvæmt báðum lögunum fer eftir lögum nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála.
Hvaða lög gilda um hvaða ástæðu?
- Kyn: lög nr. 150/2020. Verndin nær einnig til fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá.
- Kynþáttur, þjóðernisuppruni, trú, lífsskoðun, fötlun, skert starfsgeta, aldur, kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni og kyntjáning: lög nr. 86/2018.
- Ríkisfang: fellur ekki undir lög nr. 86/2018. Launafólk frá öðrum EES-ríkjum nýtur verndar gegn mismunun vegna ríkisfangs samkvæmt reglum EES-samningsins um frjálsa för launafólks.
- Fleiri en ein ástæða: fjölþætt mismunun er óheimil samkvæmt báðum lögunum.
Tengsl við EES-rétt
Reglur um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði eiga sér stoð í EES-samningnum, meðal annars í 69. gr. samningsins um launajafnrétti og tilskipunum um jafna meðferð karla og kvenna sem eru hluti af samningnum.
Lög nr. 86/2018 sækja efnivið í tilskipanir 2000/43/EB og 2000/78/EB. Þær tilskipanir eru ekki hluti af EES-samningnum. Ísland lögfesti efni þeirra að eigin frumkvæði. Dómar Evrópudómstólsins um tilskipanirnar geta haft þýðingu við skýringu laganna en binda íslenska dómstóla ekki með sama hætti og dómar um EES-reglur.
Efni kaflans
- Bann við mismunun: hvað telst mismunun, verndaðar ástæður, heimil frávik, áreitni, meðganga og skyldur atvinnurekenda.
- Launajafnrétti: réttur til jafnra launa fyrir sömu og jafnverðmæt störf, sönnunarbyrði, dómar og úrskurðir.
- Skýrslugjöf um kynbundinn launamun: skyldur vinnustaða þar sem 50 eða fleiri starfa.
- Ráðningar og starfsframi: jafnrétti við ráðningu, rökstuðningur og aðgangur að gögnum.
- Úrræði – hvað get ég gert? Stéttarfélag, kærunefnd jafnréttismála, Jafnréttisstofa og dómstólar.
Hvert getur þú leitað?
- Stéttarfélagið þitt veitir ráðgjöf og getur aðstoðað við kæru. Sjá aðildarfélög BHM.
- Kærunefnd jafnréttismála úrskurðar um hvort brotið hafi verið gegn lögunum.
- Jafnréttisstofa hefur eftirlit með framkvæmd laganna og veitir fræðslu.
- Vinnueftirlitið hefur eftirlit með forvörnum og viðbrögðum vegna eineltis, áreitni og ofbeldis. Sjá Einelti og áreitni.