Ein­elti, áreitni og of­beldi

Einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi eru óheimil á vinnustöðum. Atvinnurekandi ber ábyrgð á forvörnum og á að bregðast við kvörtunum og ábendingum með skjótum og faglegum hætti.

Hvaða reglur gilda?

Meginreglur um viðbrögð við einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum eru í reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, sem sett er með stoð í lögum nr. 46/1980. Stundum er notuð skammstöfunin EKKO um þessi fyrirbæri.

Jafnframt gilda:

Hugtök

Einelti er síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.

Kynbundin áreitni er hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi. Hún þarf ekki að vera kynferðisleg heldur byggist á mismunun vegna kyns, til dæmis niðurlægjandi athugasemdir um getu fólks vegna kyns þess.

Kynferðisleg áreitni er hvers kyns kynferðisleg hegðun sem hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu þess sem fyrir henni verður, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn eða líkamleg.

Ofbeldi er hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennd svipting frelsis.

Árið 2023 voru orðin „í óþökk viðkomandi“ felld brott úr skilgreiningum á kynbundinni og kynferðislegri áreitni í reglugerðinni. Ekki er því lengur skilyrði að hegðunin sé í óþökk þess sem fyrir henni verður.

Hvaða skyldur hefur atvinnurekandi?

Forvarnir

  • Atvinnurekandi skal við gerð áhættumats greina áhættuþætti eineltis, áreitni og ofbeldis, þar á meðal af hálfu þriðja aðila, svo sem viðskiptavina, sjúklinga, nemenda eða annarra notenda þjónustu. Taka skal mið af þáttum á borð við fjölda og aldur starfsfólks, kynjahlutfall, ólíkan menningarlegan bakgrunn, tungumálaerfiðleika, skipulag vinnutíma, vinnuálag og eðli starfa.
  • Í áætlun um forvarnir skal koma fram til hvaða aðgerða verði gripið til að koma í veg fyrir slíka hegðun, hvert starfsfólk getur komið á framfæri kvörtun eða ábendingu, hvernig brugðist verður við og hvernig mál eru skráð og meðhöndluð.
  • Atvinnurekandi skal gera starfsfólki ljóst að einelti, áreitni og ofbeldi er óheimilt á vinnustaðnum. Honum er sjálfum óheimilt að beita starfsfólk slíkri hegðun.

Viðbrögð við kvörtun eða ábendingu

Komi fram kvörtun, ábending eða rökstuddur grunur um einelti, áreitni eða ofbeldi, eða verði atvinnurekandi sjálfur var við slíkt, skal hann:

  1. bregðast við eins fljótt og kostur er,
  2. meta aðstæður í samráði við vinnuverndarfulltrúa, til dæmis öryggistrúnaðarmann, eftir því sem við á,
  3. gefa aðilum máls kost á að tjá sig,
  4. grípa til aðgerða til að stöðva hegðunina og koma í veg fyrir að hún endurtaki sig, jafnvel þótt niðurstaðan verði ekki sú að um einelti, áreitni eða ofbeldi hafi verið að ræða, ef aðstæður gefa tilefni til,
  5. skrá málið og upplýsa aðila um framvindu þess og lyktir.

Atvinnurekandi skal gæta nærgætni og virða einkalíf þeirra sem í hlut eiga. Meðferð mála á að vera í samræmi við áætlun vinnustaðarins.

Þegar gerandi er yfirmaður eða utanaðkomandi

Ef kvörtun beinist að næsta yfirmanni á starfsfólk að geta beint henni annað, til dæmis til yfirmanns hans, mannauðsdeildar eða öryggistrúnaðarmanns, eftir því sem áætlun vinnustaðarins gerir ráð fyrir. Algengt er að fengnir séu óháðir utanaðkomandi aðilar til að kanna mál.

Skyldur atvinnurekanda ná einnig til áreitni og ofbeldis af hálfu þriðja aðila. Í störfum þar sem starfsfólk sinnir notendum þjónustu, til dæmis í heilbrigðis-, félags- og menntakerfi, þarf áhættumat og áætlun um forvarnir sérstaklega að taka mið af þessu.

Hvaða skyldur hefur starfsfólk?

Starfsfólki er óheimilt að leggja samstarfsfólk, atvinnurekanda eða aðra í einelti eða beita þá áreitni eða ofbeldi. Starfsfólk sem verður fyrir slíkri hegðun eða hefur rökstuddan grun um hana skal upplýsa atvinnurekanda eða vinnuverndarfulltrúa.

Hvert getur starfsfólk leitað?

  • Innan vinnustaðarins: til næsta yfirmanns eða þess sem tilgreindur er í áætlun vinnustaðarins, eða til öryggistrúnaðarmanns.
  • Trúnaðarmaður og stéttarfélag: stéttarfélög veita ráðgjöf í trúnaði. Heildarsamtök launafólks og VIRK starfsendurhæfingarsjóður standa saman að verkefninu Stöndum með þolendum á vinnumarkaði.
  • Vinnueftirlitið: hægt er að senda Vinnueftirlitinu ábendingu. Stofnunin hefur eftirlit með því að atvinnurekandi hafi gert áætlun og bregðist við málum með fullnægjandi hætti. Hún hefur hins vegar ekki heimild til að skera úr um hvort tiltekin hegðun teljist einelti eða áreitni.
  • Kærunefnd jafnréttismála: telji starfsmaður að brotið hafi verið gegn lögum nr. 150/2020 eða nr. 86/2018, til dæmis með kynbundinni eða kynferðislegri áreitni, getur hann kært til kærunefndar jafnréttismála. Kæra skal berast innan sex mánaða. Úrskurðir nefndarinnar eru bindandi gagnvart aðilum, en þeim má skjóta til dómstóla. Sjá einnig kærumál vegna brota á jafnréttislögum.
  • Lögregla: ef um refsiverða háttsemi er að ræða, svo sem líkamlegt ofbeldi, hótanir eða kynferðisbrot.

Í vissum tilvikum getur stofnast réttur til skaðabóta eða miskabóta. Mikilvægt er að skrá atvik, varðveita gögn og leita ráðgjafar stéttarfélags sem fyrst.

Mismunun sem áhættuþáttur

Mismunun og fordómar í garð tiltekinna hópa á vinnustað, til dæmis vegna uppruna, kynhneigðar eða fötlunar, geta valdið streitu og vanlíðan og haft alvarleg áhrif á heilsu og starfsgetu til skemmri og lengri tíma. Í skýrslu OECD frá 2024, The State and Effects of Discrimination in the European Union, er fjallað ítarlega um afleiðingar mismununar á vinnumarkaði. Sjá nánar um bann við mismunun.

Fræðsla og leiðbeiningar

Vinnueftirlitið hefur gefið út fræðsluefni og leiðbeiningar um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi, þar á meðal flæðirit og gátlista fyrir stjórnendur og leiðbeiningar um fyrstu viðbrögð starfsfólks.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt