Sjóð­ir BHM

Sjálfstætt starfandi félagsfólk getur greitt í sjóði BHM og áunnið sér þar rétt til styrkja og sjúkradagpeninga samkvæmt úthlutunarreglum sjóðanna.

Aðild sjálfstætt starfandi að sjóðum BHM er valkvæð. Réttindi myndast þegar iðgjöld hafa verið greidd í tiltekinn tíma. Fjárhæðir iðgjalda, biðtímar og önnur skilyrði fara eftir gildandi úthlutunarreglum hvers sjóðs. Kynntu þér reglurnar og hafðu samband við þjónustuver BHM áður en greiðslur hefjast.

Sjúkrasjóður BHM

Sjúkrasjóður BHM styður félagsfólk BHM á almennum vinnumarkaði, meðal annars með sjúkradagpeningum og styrkjum. Fyrir sjálfstætt starfandi getur sjúkrasjóður skipt miklu, þar sem þeir eiga ekki rétt á launum í veikindum.

Orlofssjóður BHM

Orlofssjóður BHM veitir sjóðfélögum aðgang að orlofshúsum og ýmsum afsláttum tengdum orlofi.

Starfsmenntunarsjóður BHM

Starfsmenntunarsjóður BHM veitir styrki til menntunar og fræðslu sem tengist fagsviði eða starfi umsækjanda.

Umsóknir og þjónusta

Sótt er um styrki og greiðslur á Mínum síðum BHM. Þjónustuver BHM veitir upplýsingar um sjóðina í síma 595 5100 og á netfanginu sjodir@bhm.is. Yfirlit yfir alla sjóði er á síðunni Styrkir og sjóðir.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt